17.04.1946
Neðri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í C-deild Alþingistíðinda. (3909)

96. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði

Frsm. (Lúðvík Jósefsson):

Ég vil aðeins segja það í tilefni af þessari brtt., að hún er alveg sérstæð að því leyti, að hv. flm. hefur ekki dottið í hug að minnast á þennan stað í sambandi við almenn hafnarlög. En svo dettur honum í hug, að ákveðið verði að byggja landshöfn þarna, þar sem engum hefur til hugar komið, að ætti að gera lendingarbætur á sama tíma og l. um það efni eru að fara í gegnum þingið. Ég vil því mæla í gegn því, að þessi till. komi inn í þessa rökst. dagskrá.