17.04.1946
Neðri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í C-deild Alþingistíðinda. (3910)
96. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði
Sigurður Kristjánsson:
Ég ætlaði ekki að taka til máls þrátt fyrir það, þó að þessi mál séu til meðferðar, sem ég hef nú um 2 ár verið sérstaklega kjörinn til af þinginu að hafa með höndum og þar af leiðandi orðið að hafa meiri afskipti af þeim en flestir aðrir. En þegar hv. 1. þm. Árn. og hv. þm. V.-Sk. koma með stórkostlegar vítur í garð stjórnarinnar þegar 4 þm. úr stjórnarandstöðunni hafa tekið til máls um þetta mál, en aðeins einn maður af hálfu stjórnarsinna, þá þykja mér þetta vera svo mikil undur, að ég get ekki orða bundizt. Þó mundi ég ekki hafa farið að kveðja mér hljóðs, ef ekki stæði þannig á, eins og hv. 6. landsk. þm. tók fram, að þetta kemur eins og fjandinn úr sauðarleggnum að því leyti, að hv. þm. V.-Sk. hefur setið allt þetta þing án þess að hafa séð ástæðu til að bera fram till. um rannsókn á lendingarbótum á þessum stað. En nú rýkur hann til og kemur með till. um, að þarna verði byggð landshöfn. En þetta er hin mesta fjarstæða, eins og hv. 6. landsk. tók fram.