19.03.1946
Sameinað þing: 34. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í D-deild Alþingistíðinda. (3930)
195. mál, hveraorka á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp
Flm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Ég þarf ekki að fylgja þessu máli úr hlaði með langri ræðu. Aðalatriði þessarar till., sem ég flyt ásamt þingmönnum af Vestfjörðum, er það, að skorað er á samgmrh. að láta á næsta sumri fara fram rannsókn jarðhitasvæðanna á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Tilgangur okkar tillögumanna með því að fá þessa rannsókn framkvæmda er sá, að fá gengið úr skugga um það, hvort ráðlegt muni vera eða mögulegt að framleiða með jarðhita á þessum stað rafmagn, sem hentugt væri til hagnýtingar fyrir nærliggjandi sveitir við Ísafjarðardjúp, kaupstaði og kauptún í þessum landshluta. Það er fyrir löngu alkunnugt mál, að á þessum stað Reykjanesi, eru mjög mikil jarðhitasvæði, ein hin mestu á þessu landi. Þessi jarðhiti hefur um alllangt skeið verið hagnýttur, upphaflega til saltvinnslu, sem var merkileg tilraun, sem gerð var á þessum stað á 18. öld. Þá var þar og hafizt handa um sundkennslu, sem einnig mun hafa verið ein hin fyrsta hér á landi. Það var um og eftir miðja 19. öld, sem byrjað var á hagnýtingu jarðhita á Reykjanesi til þeirrar starfsemi, og hefur því verið fram haldið síðan. Loks hefur nú um alllangt skeið verið starfræktur þar myndarlegur héraðsskóli og í sambandi við hann og kaupfélagsstarfsemina á Ísafirði hefur verið rekin þar allmikil gróðurhúsarækt. Af öllu þessu má marka, að þarna er um óvenjulegan jarðhita að ræða og að brýna nauðsyn ber til þess, að skorið verði úr um það, hversu mikil sú orka er, sem þar er um að ræða, og hvort unnt sé að nota hana til raforkuframleiðslu í stórum stíl fyrir nærliggjandi sveitir og sjávarbyggðir. Það er þannig, að á norðanverðum Vestfjörðum hefur enn þá ekki verið skorið úr um það, hvernig heppilegast verði að framleiða raforku fyrir þau byggðarlög, og þess vegna er mjög æskilegt, að hafizt verði handa um það sem fyrst að fá úr því skorið, hvaða leiðir eru fyrir hendi í þessum efnum. Það ber ákaflega brýna nauðsyn til þess, að á þessum stöðum, eins og raunar víðar, verði raforkan undirstaða þess, að hafizt verði handa í fiskiðnaði, sem mjög er í uppsiglingu í sjávarplássum við Ísafjarðardjúp og víðar á Vestfjörðum, Við flm. þessarar þáltill. teljum mjög æskilegt, að þessi rannsókn, sem þarna er gert ráð fyrir, fari fram á komandi sumri, og leggjum á það mikla áherzlu, að grundvöllur að henni verði lagður með samþykkt þessarar þáltill.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um till. sjálfa við þennan hluta umr. Ég tel líklegt, að hæstv. forseti óski þess, að till. gangi til n., og er það þá einna helzt allshn., sem mun hafa haft með slíkar till. að gera. En ég vildi óska þess fyrir hönd okkar flm., að till. fengi góða afgreiðslu og að henni gæti orðið lokið á því þingi, sem nú situr að störfum.