06.12.1945
Neðri deild: 50. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í C-deild Alþingistíðinda. (3949)
135. mál, atvinnudeild háskólans
Sigfús Sigurhjartarson:
Herra forseti. Ég sé, að hv. þm. Snæf., sem var kosinn frsm. n., er ekki viðstaddur. Ég er ekki undir það búinn að flytja framsöguræðu um málið, en mun þó gera það með nokkrum orðum, svo að málið þurfi ekki að tefjast, þótt frsm. hafi ekki mætt á fundi. Eins og frv. ber með sér, er það flutt af menntmn. fyrir beiðni menntmrh., og einstakir nm. hafa óbundnar hendur um breyt. á því í einstökum atriðum.
Frv. er samið af n., sem í voru Alexander Jóhannesson prófessor, og var hann formaður, Níels Dungal prófessor, Árni Friðriksson fiskifræðingur, Ásgeir Þorsteinsson verkfræðingur, Björn Sigurðsson læknir og dr. Þórður Þorbjarnarson. Menntmn. hefur enn ekki athugað frv. til neinnar hlítar, en mun að fyrstu umr. lokinni taka það til rækilegrar athugunar og mun gefa út nál. að því búnu.
Að svo komnu hef ég ekki frekari framsögu um þetta mál, en mælist til, að því verði vísað til 2. umr.