12.04.1946
Neðri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í C-deild Alþingistíðinda. (3956)

135. mál, atvinnudeild háskólans

Jón Sigurðsson:

Herra forseti. Ég var búinn að kveðja mér hljóðs, áður en hv. frsm. hélt framsöguræðu sína, þó að hæstv. forseti veitti því ekki athygli. Ég ætla mér þess vegna ekki að ræða frv., en vildi undirstrika það, að ég tel það illa farið, ef á að keyra svona mál áfram þannig, að menn hafi í raun og veru engan tíma til að athuga það. Ég vil þess vegna undirstrika það og mælast til þess, að málinu sé frestað til morguns, svo að það geti fengið nokkra athugun. Þetta er talsvert stórt mál og snertir allmjög landbúnaðinn. Það er nú lagt á borðið fyrir framan mig, og ég er ekki svo fljótur að átta mig, að ég geti farið að ræða mál á sömu stundu og það er lagt fyrir mig til athugunar, þegar það er líka jafnstórt frv. og mér sýnist við fljótan yfirlestur þetta vera. Ég ætla því ekki að ræða málið frekar, en ef það er meiningin að keyra það fram nú, þá mun ég ekki skipta mér af afgreiðslu þess.