13.04.1946
Neðri deild: 109. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í C-deild Alþingistíðinda. (3964)

135. mál, atvinnudeild háskólans

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Ýmsar þessar brtt. hv. þm. A.-Sk., sem fluttar eru á þskj. 793, voru ræddar í menntmn. og ýmsar af þeim hlutu góðar undirtektir. Ég tel vafalaustað um margar till. geti orðið samkomulag í n. Út af þeim fyrirspurnum, hvort tími vinnist til nefndarstarfa, vil ég lýsa yfir því, að ég mun boða til fundar í kvöld eða á morgun, svo að hægt sé að afgreiða málið fyrir mánudag og 3. umr. geti þá farið fram.