13.12.1945
Sameinað þing: 18. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í D-deild Alþingistíðinda. (3976)
134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga
Forsrh. (Ólafur Thors) :
Ég hef ekki haft tækifæri til að fylgjast með þessum umr., en ég heyrði ræðu hæstv. dómsmrh. og skal ekki á þessu stigi málsins draga neinar ályktanir. En út af þeirri till., sem hér liggur fyrir um veitingu landsvistarleyfis, vil ég segja það, að um þetta er ágreiningur innan ríkisstj., en ég geri hann ekki að umræðuefni hér, og kann ég vel að meta afstöðu dómsmrh., sem þetta heyrir undir. Ég veit, að margir hv. þm. hafa tilhneigingu til að verða við óskum þessara manna, og ég efast ekki um, að hæstv. dómsmrh. hefur einnig tilhneigingu í þá átt. Ég tel fyrsta sjónarmiðið vera, að hér er um að ræða menn, sem eru giftir íslenzkum konum og eiga íslenzk börn, og því sjálfsagt að sýna þeim þá tillitssemi, sem mannlegar tilfinningar kalla á. Það væri mjög óviðfelldið, ef utanrrh. bæði um aðgerðir, sem sá, er valdið hefur, dómsmrh., teldi ekki góðar aðgerðir. Á laugardag, þegar þessi till. var fram komin, taldi ég rétt af mér að athuga þetta nokkuð og símaði til sendisveitar Íslands í London og óskaði þess, að hún bæði um frest á brottsendingu þessara manna, meðan þessi mál væru rædd hér á Alþ. Formáli þessarar beiðni var að sjálfsögðu sá, að Alþ. mundi afgreiða þetta mál fljótlega. Mér hefur borizt svar við þessari beiðni á þá leið. að ekki muni hægt að girða fyrir héðan af, að þessir menn verði fluttir til Þýzkalands, en aftar í orðsendingunni er óbeint gefið í skyn, að ekki sé vonlaust, að hægt verði að fá þessa menn til Íslands, ef þess verði sérstaklega óskað af Alþingi. — Ég tel mér skylt að upplýsa þetta, enda þótt afleiðingin af samþykkt till. hafi eftir sem áður sína þýðingu.
Um brtt. á þskj. 335 vil ég segja: Aðaltill. er bundin við þá menn, sem búsettir voru hér fyrir 1939, en með þessari brtt. er átt við alla, sem kvæntir eru ísl. konum. Ég tel höfuðsjónarmiðið það, að hér eigi í hlut íslenzkar konur og börn, og þess vegna eðlilegt, að teknir verði allir menn, sem bundizt hafa íslenzkum konum, án tillits til, hvort þeir hafa búið hér fyrir 1939. Meginatriðið er, að þær konur og börn, sem um er að ræða, verði ekki flutt þangað, sem við engir óskum að vera fluttir. Þetta hygg ég vera sjónarmiðið á þskj. 335, og það tel ég vera rétt. Hitt er svo álitamál, hvað langt skal fara í skorðunum. Ég treysti mér ekki til að dæma, hvað menn hafi verið knúðir til að vinna fyrir sitt ríki eða hvað þeir hafa talið sig tilneydda að gera. Slíkt verður alltaf erfitt að gera.