13.12.1945
Sameinað þing: 18. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í D-deild Alþingistíðinda. (3983)
134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga
Hermann Jónasson:
Herra forseti. Ég skal ekki sérstaklega finna að því, þótt umræður séu skornar niður, en eftir þær umr., sem farið hafa hér fram og settar hafa verið í það form, sem gert hefur verið, væri ekki óeðlilegt, að þetta mál fengist rætt til hlítar.
Ég ætla aðeins að minnast á nokkur atriði úr ræðu hæstv. dómsmrh., sem mér virðist sýna, að komi fram sem eins konar rökþrot í þessu máli. Hann sagði, að ég hefði sagt, að það væri einhver fimmta herdeild í landinu. Allir heyrðu, að ég sagði, að hann hefði sagt, að Gerlach hefði verið sendur hingað til þess að koma hér upp fimmtu herdeild, og þess vegna bæri skylda til að láta fara fram rannsókn. Hann sagði, að í þessu bréfi sé sagt frá öðrum aðila en Þjóðverjum, sem væri hættulegur, og sagði, að þá hefði verið enn þá meiri ástæða til þess að rannsókn færi fram. Það er þetta, sem strikað er undir og ekki má nefna. Hæstv. ráðh. sagði, að ég hefði átt að birta þetta bréf, sem væri opinbert plagg, fyrir 5 eða 6 árum. Var ég ekki að lesa upp það, sem ekki mátti segja? Þegar ég spurði hann nú, hvort ekki mætti birta þessi plögg nú, þá má ekki gera það. Hver talar svona nema sá, sem er kominn í rökþrot? — Hann sagði, að ég hefði sagt, að það ætti að gera skrá yfir allt það fólk, sem hefði komið heim meðan á stríðinu stóð eða eftir að því lauk og dvalið hefði í löndum, þar sem Þjóðverjar hefðu verið, vegna þess að það væri grunsamlegt. Hér er sama sagan, þetta er bara þvogl hjá hæstv. ráðh. Ég sagði einmitt, að hann væri að gefa þetta í skyn með því að segja, að maður, sem hefði farið til Þýzkalands, væri eins hættulegur og þeir, sem hefðu dvalið þar. En það gætir dálítils misskilnings í þessu sambandi, og af því að hann var að gefa þetta í skyn, vil ég spyrja hann að því, — það getur verið, að ég muni það ekki rétt, en var hæstv. ráðh. ekki staddur í Danmörku, þegar styrjöldin brauzt út? Var honum ekki sýndur sá sérstaki greiði, að hann fékk að ferðast um þýzkt yfirráðasvæði, fékk að dvelja þar og koma síðan heim? Hvernig getur hæstv. ráðh. dottið í hug, að ég fari að gefa í skyn, að hann væri grunsamlegur fyrir þessar ferðir sínar? Mér gæti ekki komið slíkt til hugar. En þetta er hins vegar alveg hliðstætt við það, sem hæstv. ráðh. sagði um lögreglustjóra. Hæstv. ráðh. sagðist ekkert hafa lesið upp úr bréfinu annað en það, sem væri satt og rétt. En hvernig hafa blöðin skilið ummæli hans?
Að lokum ætla ég að benda á það, að hæstv. ráðh. sagðist ekki hafa lesið upp kafla úr bréfinu, sem mundi koma illa við Framsfl., ef hann yrði lesinn upp. Finnst mér málfærsla hæstv. ráðh. þarna ná hámarki sínu. Ég vitna til Alþ. og skora á hæstv. dómsmrh. að lesa þennan kafla upp úr bréfinu, sem er opinbert plagg. Ég vonast svo eftir því að fá að ræða þetta mál nánar og vona aðeins, að málfærsla hæstv. dómsmrh., sem verið hefur með eindæmum, hafi verið leiðrétt að svo miklu leyti, að hún hafi ekki áhrif á rétta afgreiðslu þessa máls.