13.12.1945
Sameinað þing: 18. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í D-deild Alþingistíðinda. (3992)
134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Það var ekki í tilefni af ræðu hv. þm. V.-Sk. sem ég kvaddi mér hljóðs, heldur vegna ummæla hans um vinaþjóð. Ég vil lýsa yfir því, að stjórn Bandaríkjanna hefur í einu og öllu haldið samninga sína við okkur. Það datt engum í hug, að herinn mundi hverfa héðan strax sama daginn og vopnaviðskiptum var hætt. Þegar þess er gætt, að flytja þurfti milljónir hermanna eftir erfiðum og löngum flutningaleiðum, er ljóst, að herflutningum frá Íslandi hefur verið hraðað meir en frá nokkru öðru landi. Það er enn að vísu eftir fámennt lið hér, eftir því sem ég bezt veit, og enginn hefur haft þau ummæli við mig, að Bandaríkjastjórn hafi rofið samninga á okkur, og er ekki viðeigandi að viðhafa slíkt orðalag nema að byggja á ærlegum rökum.