13.12.1945
Sameinað þing: 18. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í D-deild Alþingistíðinda. (3994)
134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að mótmæla þeirri aðferð að fara að skera niður ræðutímann. Ég álít ófært að gefa ekki alþm. kost á að tala fullan ræðutíma. Ég veit, af hverju það stafar. Hæstv. forseti mun ekki hafa haft frið fyrir þeim Þjóðverjavinum og Þjóðverjum, sem aðsetur hafa hér í bænum. Vegna æsinga þessarar klíku sér forseti sér ekki annað fært en að knýja málið áfram. Hún var ekki alveg svona mikil miskunnsemin og mannúðin hjá hv. þm. hérna á árunum þegar leitað var eftir því að fá landsvistarleyfi handa landflótta fólki, sem ætlunin var að flytja hingað til lands. Ég mótmæli því, að umr. séu skornar niður, og heimta minn rétt til að ræða málið.
Hv. þm. N.-Ísf. minntist á skýrslurnar eins og þær væru ósköp þýðingarlitlar. Þær eru nú einmitt það, sem er mergurinn málsins. Það þarf að rannsaka, hvað lagt hefur verið fyrir þá menn, sem sendir hafa verið hingað upp. Svo er sagt, að þetta komi ekki málinu við, þeir hafi ekki gert neitt af sér hér. Nei, þeir höfðu aldrei tækifæri til þess. Konur og börn þessara manna hafa sama rétt og aðrir hér á landi og líða ekki. Það hefur ekki staðið á mér eða mínum flokki að hækka sveitarstyrkinn, og ef hv. þm. telur þörf á, að hann sé hækkaður, þá er ég reiðubúinn til samstarfs. Þótt honum finnist sveitarstyrkurinn lítill, þá er þó verra að vera í Þýzkalandi nú en að lifa hér af honum. Ég veit, hvað það er að vera í Þýzkalandi nú. Þegar maður veit það, þá hlýtur maður að meta enn meira þá gestrisni, sem íslenzka ríkið sýnir konum og börnum þessara þýzku manna. Aðeins einn af þeim mönnum, sem hér um ræðir, hefur alltaf neitað að fara til Þýzkalands, og er skylt að geta þess. Meðan Þýzkaland var nógu sterkt til þess, að þessir menn gætu búizt við að geta orðið das Herrenvolk, kusu þeir að fara þangað, að þessum eina undanskildum.
Ég vil endurtaka, að ég áskil mér rétt til að ræða þetta mál nánar síðar, og vil fá fullan ræðutíma. Þm. verða að hafa kröfu á að fá fullan ræðutíma, þegar jafnmikilvægt mál er annars vegar og þetta er.
Hv. þm. Borgf. talaði áðan af fjálgleik miklum um mannúð og annað þess háttar. Það fer heldur lítið fyrir þess konar tilfinningum hérna um árið, þegar verið var að níðast á munaðarlausu barni, sem reynt var að útvega landsvist hér. Faðir þess var í fangabúðum, og móðir þess átti að fara þangað líka. Það fór lítið fyrir tilfinningaseminni á þeim dögum, og ekki var gestrisnin fyrirferðarmeiri hjá íslenzku ríkisstj. þá. Eftir blaði þáv. forsrh. að dæma, þá átti að stafa hætta af því fyrir þjóðarstofninn að veita þessu stúlkubarni og móður þess landsvist, af því að þær voru af sama stofni og Jesús Kristur og voru landflótta. Ef það er meiningin hjá þessum mönnum, sem fyrir nokkrum árum komu þannig fram við þetta flóttafólk, að slá á strengi tilfinninganna vegna þessara erlendu manna, þá er hægt að koma með ýmislegt, sem kann að snerta tilfinningarnar.
Ég vil enn mótmæla því, að umr. séu skornar niður, og vil, að málið verði rætt fullkomlega eftir því, sem efni standa til og búið er að rannsaka skýrslur viðkomandi málinu. Það er dálítið undarlegt, að þeir, sem nú virðast vera hinir æstustu við að bjarga nokkrum nazistum hingað til lands, skuli vera sömu mennirnir sem fyrir fáum árum máttu ekki heyra það nefnt, að umkomulaust, landflótta stúlkubarn væri flutt hingað, vegna þess að af því mundi stafa hin mesta hætta fyrir þjóðina.