19.12.1945
Sameinað þing: 20. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í D-deild Alþingistíðinda. (4004)

134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga

Sigurður Bjarnason:

Ég vil aðeins út af þeirri aths., sem hv. 2. þm. Reykv. (EOl) skaut hér fram, benda hæstv. forseta á það, að við flm. till. munum illa geta sætt okkur við það, að vegna þess að lítill minni hl. n. hafi ekki skilað áliti, verði málið ekki tekið á dagskrá. Vil ég eindregið styðja þau tilmæli, sem komu hér fram áðan frá hv. frsm. meiri hl. n. (MJ).