20.12.1945
Sameinað þing: 21. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (4014)
134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga
Forseti (JPálm) :
Það er nú orðið augljóst, að þessi till. getur ekki fengið afgreiðslu fyrr en undir morgun, ef umr. verður haldið áfram. Enda þó að það yrði þriðji næturfundurinn í röð, þá mundi ég ekki hlífa hv. þm. við því, ef það hefði nokkra úrslitaþýðingu fyrir það fólk, sem hlut á að máli. En þar sem ég hef fengið upplýsingar um það, að málið er í athugun og að það hefur engin áhrif á landsvist hlutaðeigandi manna, hvort þessi till. verður samþ. nú eða eftir áformað þinghlé, vil ég ekki halda þessum umræðum áfram að þessu sinni, og fresta því málinu.