20.12.1945
Sameinað þing: 21. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (4015)
134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga
Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson) :
Ég vil ekki gera neina uppreisn á móti forsetavaldinu, en láta í ljós, að mér þykir mjög leiðinlegt, að þessum umr. er ekki haldið áfram. Veit ég ekki, hvernig hægt er að sjá af spádómsgáfu, hve langar umr. verða. Af tóninum í hv. 2. þm. Reykv. er að vísu auðséð, að það á að beita málþófi. En ég fer fram á, að hæstv. forseti taki til athugunar enn á ný, hvort það sé í raun og veru svo fjarstætt, að hægt sé að ljúka þessu máli.