20.12.1945
Sameinað þing: 21. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (4016)

134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga

Forseti (JPálm) :

Ég þykist hafa alveg fast undir fótum með það, að þótt till. verði samþ. nú, sem mundi ekki verða fyrr en næsta dag, þá hefur það ekki þýðingu fyrir landsvist mannanna. Er þetta eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið frá hæstv. ríkisstj. Það er ekki annað en rannsókn, sem hún óskar eftir. Afgreiðsla þessa máls hefur enga úrslitaþýðingu fram til þess tíma, sem þing kemur væntanlega saman.