20.12.1945
Sameinað þing: 21. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (4017)

134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga

Hermann Jónasson:

Ég vildi ákveðið óska, að umr. um þetta mál yrði haldið áfram, því að það eru augljóslega engin vinnubrögð, að minni hl. geti haldið uppi málþófi til að stöðva mál, sem full ástæða er til að álíta, að meiri hl. vilji afgreiða. Þegar umr. hafa farið fram svo að skaplegt má telja og í þeim hefur upplýstst svo sem eðlilegt má telja gagnvart þingsköpum, þá er á valdi forseta að bera undir atkv., hvort umr. skuli ekki skera niður. Þess vegna er það á valdi Alþ. að afgr. málið nú í nótt. Hins vegar sáum við, að hæstv. forseti kom hér áðan með skrifað blað, sem var fyrirskipun frá ríkisstj. í þessu máli, vegna þess að það er vitað, að hæstv. dómsmrh. hefur látið liggja að því, að hann gerði afgreiðslu þessa máls að fráfararatriði. Jafnframt því, sem haldið hefur verið uppi málþófi af einum þm. stj., sem málinu er mótfallinn, hefur stj. setið á fundi og kallað hæstv. forseta hvað eftir annað úr stóli til að ræða við hann um málið. Þetta eru þær raunverulegu ástæður. En ég vænti þess, að hæstv. forseti taki það tillit til eðlis þingskapa um afgreiðslu mála, þar sem meirihlutavald er til að afgreiða mál, og að hann verði við þeirri ósk.