20.12.1945
Sameinað þing: 21. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í D-deild Alþingistíðinda. (4020)

134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Ég þykist kunna vel að meta þann góðvilja, sem fram kom í orðum hæstv. forseta í garð þessa máls, enda veit ég frá upphafi, að hann vill allt gera, sem hægt er, fyrir þetta fólk. Hins vegar verð ég að segja, að af reynslunni ber ég ekki eins gott traust til hæstv. dómsmrh. í þessu efni, að sú rannsókn, sem forsrh. talaði um, að væri hafin og mundi halda áfram, muni í nánustu framtíð bera þann árangur, sem ætlazt er til. Ég verð þess vegna mjög að harma það, að ríkisstj. í heild skuli hafa talið sig knúða til þess að fara þess á leit við hæstv. forseta eða að minnsta kosti styðja þá ákvörðun hans, að umr. verði frestað á þessu stigi málsins. Ég get ekki heldur sem flm. þessarar till. látið vera að átelja nokkuð þá aðferð, sem minni hl. utanrmn. hefur beitt hér, nefnilega algeru málþófi og einnig þeirri þekktu — en lítt rómuðu — aðferð að skila ekki nál. Þegar á allt þetta er litið og það, sem gerzt hefur í málinu, þá höfum við flm. till. orðið sammála um að beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, hvort hann muni ekki sjá sér fært að ljúka málinu á þessu kvöldi. Ég geri ráð fyrir, að þm. muni reiðubúnir að ganga til atkv., hvort umr. skuli fram haldið, og ég treysti hæstv. forseta að leita atkv. um þetta.