20.12.1945
Sameinað þing: 21. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í D-deild Alþingistíðinda. (4023)

134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga

Hermann Jónasson:

Ég vildi með örfáum setningum rifja upp, að utanrmn. hefur átt sérstaklega að rannsaka þetta mál, en n. var sagt, að stj. teldi sig ekki bundna við álit hennar. Í annan stað var mér skýrt svo frá, að ef meiri hl. þm. ritaði undir yfirlýsingu um það, að það sé vilji þeirra, að Þjóðverjar þeir, sem ekki hafa gerzt brotlegir með dvöl sinni hér á landi, fengju landsvist aftur, mundi dómsmrh. verða að lofa þessum mönnum að hverfa heim. Síðan fá 1. flm. till. og ég bréf um, að þeta nægi ekki, meirihlutavilji verði að koma frá Alþ. Nú, þegar þessi vilji er sýnilegur, — ég hef beðið alla framsóknarmenn að vera viðstadda, — þá sjá allir menn, að ef málið er rætt frá kl. 9 til kl. 2 eða 3, verður málið fullrætt, og ekki óeðlilegt, að umr. verði eftir það skornar niður af meiri hl. Er dálítið einkennileg afgreiðsla, ef minni hl. á enn að ráða í þessu máli. Það er augljóst mál, að forseti hefði ekki tekið þetta mál á dagskrá til að ræða það í hálfa aðra klukkustund, ef það var ekki ásetningur hans áður en hann var kallaður úr forsetastóli til stj. að ljúka málinu. En eftir það er hugur hans breyttur, fyrir þá sök, að dómsmrh. hefur látið liggja að því eða lýst ákveðið yfir því, að hann gerði þetta að fráfararatriði. Hann um það. En ég tel þá karlmennskuna ekki verða sérstaklega mikla gagnvart þeim mönnum, sem hlut eiga að máli.

Ég skal ekki fara út í umr. um málið, en segi að gefnu tilefni frá hæstv. forsrh., að ég hóf ekki nein harðyrði um þetta mál. Annar maður hafði framsögu og gerði það með hófsemd, og ekki var byrjað á hörku frá flm. hálfu, hvorki við fyrri né seinni umr. En um valdið til að knýja fram afgreiðslu á þessu máli er vitað, að hæstv. forseti hefur það. Og það er vitað, að vilji stj. og þeirra, sem að henni standa, er á bak við hann í þessu efni. Ég álít mjög illa farið, hvernig virðist ætla að takast til um þetta mál, en ekki mun ég orðlengja meir, nema tilefni gefist til.