16.04.1946
Efri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í C-deild Alþingistíðinda. (4034)

135. mál, atvinnudeild háskólans

Menntmrh. (Brynjólfur Bjarnason):

Það er fleira en þetta eina atriði í frv., sem er aðkallandi. Ég held, að frv. hafi fengið góðan undirbúning í n. í Nd. Þetta er eitt af þeim frv., sem ríkisstj. hefur óskað, að fengi afgreiðslu á þessu þingi. Ég vænti því, að það geti farið til 2. umr. án þess að vera vísað til n., því að mjög er liðið á þingtímann.