28.03.1946
Sameinað þing: 35. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (4053)
134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Ég vil í tilefni þess, að komið hefur fram ósk um að fresta afgreiðslu þessa máls nú, mjög eindregið beina því til hæstv. forseta að ljúka þessu máli helzt nú í kvöld. Mér þykir að vísu illt að ganga á móti þeirri ósk, sem nú var fram borin. En ég hafði áður bent á það hér, að hv. minni hl. utanrmn. hefur komið mjög annarlega fram í þessu máli, svo að ekki sé meira sagt. Hann hefur, frá því er þetta þing kom saman á ný til framhaldsfunda 1. febr., trassazt við það að gefa út nál. um málið. Og hann beitti málþófi á síðasta fundi, sem haldinn var í Sþ. um þetta mál, áður en fundum Alþingis var frestað fyrir jólin. En það var ætlun hæstv. forseta og krafa okkar flm., að málinu yrði lokið þá. Ég vil því mjög eindregið beina því til hæstv. forseta, hvort hann sjái sér ekki fært að ljúka málinu nú í kvöld eða a. m. k. fresta því alls ekki nú án þess að hafa tryggingu fyrir því af hálfu minni hl. utanrmn., að hann ætli sér ekki að halda áfram sama leik og hann hefur leikið til þessa í þessu máli.
Ég vil svo aðeins, út af brtt. hv. þm. Snæf., segja það, að það er rétt hjá honum, að það venjulega form á þáltill. er að sjálfsögðu að skora á ríkisstj. — síður að fela henni — að gera það, sem í þál. till. felst. Og ég hygg, að meginefni þessarar þáltill. breytist ekki við þá orðalagsbreyt., sem þarna er á gerð samkv. brtt. hv. þm. Snæf., sérstaklega þegar á það er litið, að ráðh., hefur eftir sem áður það vald, sem lög áskilja honum nú, án tillits til þess, hvort fyrra orðalag þáltill. er haft eða það, sem hv. þm. Snæf. leggur til. Ég hygg þess vegna, að ég geti sætt mig við þetta orðalag þáltill., enda er þarna fyrst og fremst um form að ræða, sem ekki breytir efni þáltill. eða dregur úr þeirri áherzlu, sem þáltill. er ætlað að leggja á það atriði, sem hér um ræðir.