28.03.1946
Sameinað þing: 35. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í D-deild Alþingistíðinda. (4054)
134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga
Hermann Jónasson:
Herra forseti. Það er aðeins út af þessari frestun á málinu. Þessi frestun á afgreiðslu málsins er nú orðin, eins og sýnt hefur verið fram á, alveg einstök í sinni röð, eftir þær yfirlýsingar, sem þó lágu fyrir um afgreiðslu þessa máls þegar fyrir jól. Ég skal ekki byrja á umr. um þetta mál efnislega, því að enn þá hefur verið reynt á þessum fundi að komast hjá því, að umr. um það kæmust inn á þær leiðir, sem kalla mætti fram þrjózku eða stífni í málinu. En ég vil þó segja það, að ég efast um það, að önnur eins aðferð hafi verið höfð við mál, þar sem, eins og ég sagði áðan, þær yfirlýsingar hafa legið fyrir, sem ég áður minntíst á, en skal ekki minnast á frekar að sinni, — og þegar þess er enn fremur gætt, að maður rekur sig nú hér á götunum á það fólk útlent, sem ég hygg satt að segja, eftir því sem ég sé til þess hér, að mætti missa sig hér af götum bæjarins. En menn, sem eiga konur sínar hér heima og hefur verið vísað úr landi, án þess að við Íslendingar höfum tekið þátt í því, finnst mér, að við ættum að láta fá landsvistarleyfi, sérstaklega þegar þess er gætt, að þjóð, sem hefur haft þá undir rannsókn í fimm ár, hefur spurzt fyrir um, hvort við viljum ekki gefa þeim vegabréf, sem sýnir, að þessari þjóð virðist eðlilegt, að við leyfum þessum mönnum landsvist hér, því að þeir, þ. e. Bretar, hafa sent þá menn hingað af Þjóðverjum, sem hér voru fyrir stríð og þeir höfðu fundið seka, og óskað, að við dæmdum þá. Þessir menn, sem Englendingar hafa fundið þannig seka eftir rannsókn, eru komnir hingað heim og eru á sveitabæjum hér ekki langt frá Reykjavík. En þeir saklausu eru, hálfu ári eftir að Englendingar hafa spurt, hvort við vildum gefa út handa þeim vegabréf hingað heim, enn ekki boðnir hingað velkomnir. Þetta get ég ekki fellt mig við.
Ég vil fá það afgert eftir þingsköpum, hvenær á að ljúka þessu máli, en ég get ekki fellt mig við frestun á því nú, nema aðeins til þess að reyna að forðast of mikla stífni í málinu, ef hæstv. forseti vildi gefa yfirlýsingu um það, hvenær málið yrði tekið fyrir í síðasta lagi og afgreiðslu þess lokið. Ég veit, að þessi dráttur, sem á málinu hefur orðið, stafar af ástæðum, sem hæstv. forseti ræður sennilega ekki við. Ef það verða ekki nema örfáir dagar þangað til vænta má afgreiðslu þessa máls, læt ég mér nægja þessa yfirlýsingu hæstv. forseta. Að öðrum kosti vil ég láta ganga atkv. um það að réttum þingsköpum, hvort þann hátt á að hafa enn um meðferð þessa máls, sem hafður hefur verið hingað til. Ég mun ekki fara inn á efni málsins að svo stöddu. Þar er þó sannarlega af nógu að taka, ef rökræða á þetta mál efnislega.