26.04.1946
Efri deild: 114. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í C-deild Alþingistíðinda. (4084)
135. mál, atvinnudeild háskólans
Eiríkur Einarsson:
Herra forseti. Ég vil taka það fram með tilliti til form. menntmn., þar sem hann er lasinn, þá er naumast kostur á því að taka málið fyrir í skyndi í n., og þar sem ég er skrifari hér í þingdeildinni, þá á ég ómögulegt með að taka málið fyrir á nefndarfundi, án tillits til þess, hvort langt eða skammt er liðið á þingtímann. Það er nauðsynlegt, að form. n. sé við.