27.04.1946
Efri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í C-deild Alþingistíðinda. (4091)

135. mál, atvinnudeild háskólans

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Eins og fram kom í gær, þá liggur ekki enn fyrir nál., og má það teljast óvenjuleg aðferð, og það í stórmáli, að bíða ekki eftir nál., og mótmæli ég henni og vísa til þess, sem stendur í niðurlagi 16. gr. þingskapa. Ég vil svo leggja til, að málinu verði vísað aftur til n., og óska eftir, að það verði borið undir atkv.