27.04.1946
Sameinað þing: 41. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í D-deild Alþingistíðinda. (4139)
234. mál, fjárskipti
Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson) :
Herra forseti. Ég hef ekki getað átt samleið með meðnm. mínum um málið. Ég hef í fyrsta lagi ekki talið rétt að samþ. framlag til ársloka 1949 og að það væri verkefni síðari þ., hve mikið fé væri tekið til þessara framkvæmda. Ég hefði þó kannske getað samþ. að fá 75 þús. kr. af þessa árs fjárlögum og 200 þús. kr. að því er lömb snertir. En um þetta varð ekki samkomulag. Ég vil benda á það, að samkv. samtali við fjmrh. um þetta, þá taldi hann aðalatriðið í þessu máli það, hvort yfirleitt ætti að leyfa fjárskipti eða ekki hvar sem með þyrfti á landinu. Á þessu ári eru veittar 3 millj. kr. til sjúkdóma, og hér er farið fram á stórfé í viðbót, eða 1700 þús. kr. Hæstv. fjmrh. vildi komast að því, hvort þingvilji væri fyrir því, að fjárskipti færu fram yfirleitt. Mér finnst ekki vera neitt um þetta í till. Ég vil leyfa mér að benda á það, að á þskj., fskj. 3, stendur það, að byggja verði mikið á vörzlu, þar eð torvelt sé að girða á sumum svæðum. Þetta finnst mér ákaflega veikt, þar eð ekkert öryggi er fyrir því, að hægt sé að einangra veikina. (BSt: Þetta er aðeins eitt lítið skarð). Það getur orðið um vanrækslu að ræða og geta þá 1–2 sýktar kindur komizt í gegn og þá er þessu fé kastað á glæ. Ég vil benda á það, að síðast á þessu fskj. leggur sauðfjársjúkdómanefnd til, „að hlutaðeigandi fjáreigendur geri ekki kröfu til meiri girðinga, þar til séð væri, hvort um verulega hættu væri að ræða vestan að, en sem svarar 20–25 km., er verði notað til tvöföldunar á þeim girðingum, sem fyrir eru, þar sem mest þörf er talin, og til einhverrar framlengingar á fjöllunum fram af Saurbæjarhreppi.“ Svo er þar annað mikilsvert atriði: „Að sérstök fjárveiting fáist á því ári, sem fjárskipti færu fram, og næstu árum, og verði ekki þess vegna dregið úr öðrum fjárveitingum til varnanna.“
Ég veit ekki, hvort ráðh. telur sig bundinn af þessu skilyrði, og ætti það þá að vera í till. Hef ég því leyft mér að breyta tillgr. svo: Alþ. ályktar að heimila ríkisstjórninni að greiða úr ríkissjóði fé til fjárskipta í landinu, eftir því sem sauðfjársjúkdómanefnd leggur til á hverjum tíma, og með þeim skilyrðum, er hún kann að setja, enda fari fjárskiptin fram samkv. fyrirmælum l. þar um á hverjum tíma.
Ef þetta yrði samþ., þá er það viljayfirlýsing um, að það ætti að gilda fyrir allt landið, en annars aðeins bundið við Þingeyjarsýslu. Einnig hef ég breytt fyrirsögninni svo, að þetta yrði um fjárskipti almennt.
Loks legg ég svo til, að mínar brtt. verði samþ., og vildi enn fremur óska þess, að meiri hl. þm. yrði viðstaddur atkvgr.