19.12.1945
Sameinað þing: 20. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í B-deild Alþingistíðinda. (416)
16. mál, fjárlög 1946
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Ég vil benda á, að greidd hafa verið atkv. um brtt. á þskj. 366,XV, varðandi viðbótareftirlaun til Guðmundar Guðmundssonar fyrrv. héraðslæknis. Ég hef orðið þess var, að mjög margir hafa ekki vitað, hvort hér var um að ræða Guðmund Guðmundsson fyrrv. héraðslækni í Stykkishólmi eða Reykhólum. Vil ég gera þá fyrirspurn til hæstv. forseta, hvort hann geti ekki látið fara fram atkvgr. aftur um þennan lið, ef hér hefur verið um að ræða Guðmund Guðmundsson frá Stykkishólmi.