26.04.1946
Sameinað þing: 40. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í D-deild Alþingistíðinda. (4241)
228. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Sigurður Thoroddsen:
Herra forseti. Góðir hlustendur. — Það er erfitt að gera sér grein fyrir því, hvað vakað hefur fyrir Framsfl., þegar hann flutti vantrauststill. þá, sem hér er til umr., því að ekki verður í annað ráðið en að hann hugsi sér með því að vekja athygli þjóðarinnar á verðleikum sínum, afrekum sínum í hagsmunamálum þjóðarinnar og hvers þjóðin hefur farið á mis við, að það eru aðrir en Framsfl., sem nú um tíma hafa farið með völdin í landinu.
Þegar litið er yfir farinn veg og athugaður valdaferill Framsóknar annars vegar og valdatímabil og aðgerðir núverandi stjórnar hins vegar, verður það torskilið, að Framsfl. skuli viljandi og vitandi vits koma af stað þeirri umr., sem hér fer fram. Það var ekki til að dreifa stórstígum framförum og miklum framkvæmdum á sviði athafnalífsins meðan Framsfl. var og hét og réð hér mestu. Táknrænt fyrir það tímabil voru alls konar hömlur og takmarkanir, sem drógu úr framleiðslugetu þjóðarinnar. Þá var ekki verið að flytja skip til landsins í tugatali, hvað þá hundraðatali. Þá voru menn jafnvel sektaðir fyrir að flytja skip til landsins, eins og hæstv. atvmrh. minntist á. Þá var ekki verið að ýta undir menn til að byggja yfir sig, heldur var dregið svo úr innflutningi á byggingarefni, að allar byggingaframkvæmdir stöðvuðust. Það var þá ekki siður að flytja inn stórvirkar vélar, sem auka og margfalda afkastagetuna. Innflutningur á slíku þótti hin mesta goðgá, nema ef ske kynni þar, sem góður framsóknarmaður átti í hlut. Þá þótti það bezt hæfa að notast við pál og reku og hendurnar tómar við flesta vinnu. Þá þótti það tilheyra að láta vinnuaflið ónotað og að hafa stóra hópa atvinnuleysingja um hábjargræðistímann. Slíkir hlutir þóttu svo sjálfsagðir, að ekki var um þá að fást. Að vísu þótti réttara að hafa hemil á þessu atvinnuleysingjadóti, ef ske kynni, að það tæki upp á því að þykjast eiga rétt á að fá mat, og í því skyni voru sett þvingunarlög, og margreynt var að koma upp ríkislögreglu til þess að sjá um, að þau lög yrðu haldin. Víst var þetta leiðinda- og neyðarástand. En Framsfl. skorti ekki heldur úrræði. Allt mátti þetta laga með því að lögbinda og lækka kaup til vinnandi fólks landsins. Þetta var samkv. kokkabók Framsfl. eina sáluhjálpin í þessu efni og leiðin út úr ógöngunum. Engar framkvæmdir, bara kauplækkanir. Framkvæmdir skapa verðbólgu, sem veldur óhjákvæmilegu hruni. Þetta voru ær og kýr Framsfl.
Svo breyttust tímarnir, eins og öllum er kunnugt. Atvinna jókst, og hið vinnandi fólk braut af sér hlekki þvingunarlaga, og kaup til þess hækkaði Almenn velmegun þjóðarinnar óx. Afurðir okkar seldust betur og við hærra verði, og í staðinn fyrir að skulda tók þjóðin að eignast þar innstæður, og þegar fram liðu tímar, hafði þjóðinni safnazt þar geysimikið fé. Þá var það, sem hv. 2. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, kom fram með þá hugmynd, að þetta fé, sem væri arður af vinnu þjóðarinnar, þótt á fárra manna höndum væri, skyldi að mestu leyti notað í því skyni að auka framleiðslutæki þjóðarinnar og tryggja með því velmegun hennar í framtíðinni. Þessi hv. þm. flutti ræðu um þetta efni og sýndi þar fram á þá miklu möguleika þjóðarinnar til bættra lífsskilyrða, ef þessari hugmynd yrði fylgt. Hvernig þessari hugmynd var tekið af Framsfl., er ekki gleymt. Þeir töldu, að hér væri um draumóra og skýjaborgir að ræða. Það voru að vísu fleiri en framsóknarmenn, sem þannig litu á málið. Sama afstaða var tekin til þess í fyrstu af sjálfstæðismönnum og Alþýðuflokksmönnum, og Alþýðublaðið heimskaði sig á því að benda á hv. 2. þm. Reykv. sem hinn mesta skýjaglóp. Þrátt fyrir þessar viðtökur fór nú svo, eins og menn vita, að allar viðbárur urðu að engu fyrir þunga þeirra raka, sem lágu undir hugmyndina, og þessi hugmynd varð samstarfsgrundvöllur núverandi stj.
Eins og menn rekur minni til, gekk ekki þrautalaust að mynda stjórn á þessum grundvelli. Alþfl., sem löngum hafði ekki verið annað en hjáleiga Framsóknar innan verkalýðsstéttanna, streittist á móti í lengstu lög, setti úrslitakosti, sem hann hugði, að koma mundu í veg fyrir stjórnarmyndunina. Þegar að öllum skilyrðum hans var gengið, var áhugi flokksins fyrir stjórnarsamstarfinu ekki meiri en svo, að það var samþ. með eins atkv. meiri hluta að ganga til stjórnarsamvinnunnar, enda hefur hugur Alþfl. til stj. farið hér eftir. Öll blöð hans hafa verið í stjórnarandstöðu frá upphafi til þessa dags. En hvað um það. Stjórnarmyndunin tókst, og með þessu stjórnarstarfi hefur verið markað dýpra spor í framfarabraut þjóðarinnar bæði þjóðhagslega og atvinnutæknilega séð en nokkru sinni fyrr, og þessa tímabils mun æ minnzt í sögu okkar sem merkilegs tímabils, ef oss tekst að banda frá oss þeirri hættu, sem samfara þessum framförum steðjar að oss og ég mun víkja að síðar.
Á tveim árum verður meira en tvöföldun á skipastóli vorum. Reist eru stórvirk iðjuver til að gera framleiðslu vora úr sjónum markaðshæfari og arðmeiri. Nýrra markaða er aflað fyrir afurðir vorar, eins og hæstv. atvmrh. hefur lýst hér á undan. Í fyrsta skipti í sögu landsins er unnið eftir áætlun. Það er ekki látið ráðast eftir geðþótta einstaklinga, hvar atvinnutækin eru sett upp, heldur er þeim ákveðinn staður, þar sem heppilegast þykir og hagur þjóðarinnar þar hafður í huga. Enn sem komið er hefur mest að framkvæmdum kveðið að því er snertir aðalatvinnuveg vorn, sjávarútveginn.
Hver er dómur framsóknarmanna um þessar framkvæmdir? Hefur afstaða þeirra breytzt? Nei, enn sjá þeir ekkert annað framundan en vaxandi verðbólgu og hrun. Enn er þeirra úrræði engar framkvæmdir, bara kauplækkanir. En þeim er kannske vorkunn, a. m. k. foringjunum, því að það dylst engum, að þá dreymir um sín fyrri völd, og þeir telja sér trú um, að þeir nái þeim aftur, þegar hrunið kemur, og þess vegna óska þeir þess. En þeir eru steinrunnir, og þess vegna sjá þeir ekki, að þeirra tími er liðinn. Þeir vilja ekki sjá, að flokkur þeirra er í upplausn, að þar er hver höndin upp á móti annarri. Þeir sjá ekki, að yfir þeim sjálfum vofir hrunið, sem þeir óska þjóðinni til handa. Form. Framsfl. hefur löngum þótt misvitur, og enn sýnir hann það með því að kalla þessar útvarpsumr. yfir sig.
Eitt af því, sem mest hefur borið á í blaði Framsóknar upp á síðkastið, er það, að gert er lítið úr störfum Alþingis. Þm. annarra flokka er borið á brýn, að þeir vanræki skyldur sínar og sinni ekki störfum. Ef það væri borið saman, hvað Alþ. það, er nú situr, hefur afkastað og þau þing, sem Framsfl. réð lögum og lofum á, verður munurinn mikill. Alþingi það, er nú situr, hefur afgr. svo mörg og mikil mál, að þess verður minnzt sem einsdæmis í sögu Alþingis. Það nægir í þessu sambandi að benda á l. um stofnlánadeildina, þar sem sjávarútveginum eru tryggðar 100 millj. kr. til framkvæmda, l. um nýbyggðir, l. um almannatryggingar, l. um gagnfræðanám, húsmæðrafræðslu og menntaskóla, raforkulög, sem aðkallandi nauðsyn var að fá, þar sem fyrir dyrum eru og sumpart byrjaðar stórfelldar framkvæmdir á sviði raforkumála hér á landi. Það verða engin meðmæli fyrir Framsfl., ef afstaða hans í rafmagnsmálum á undanförnum þingum er rifjuð upp. Þegar Fljótaárvirkjunin var á döfinni, lögðust framsóknarmenn á móti því, að í þá virkjun yrði ráðizt, og þegar Andakílsárvirkjunin var rædd hér, lögðu fulltrúar allra flokka í fjhn. nema sósíalistinn ,til, að þar yrði ekki virkjað. Að vísu voru þeir þá undir áhrifum mþn. í raforkumálum, sem skipuð var samkv. þáltill., sem samþykkt var fyrir kosningar 1942, en í þeirri n. réðu framsóknarmenn öllu, þangað til fulltrúi var tilnefndur í hana af hálfu sósíalista. Sú n. klofnaði, eins og kunnugt er. Meiri hl., en í honum voru fulltrúar allra flokka nema okkar sósíalista, skilaði áliti í frumvarpsformi, sem var svo gallað, að ekki var hægt að breyta því nema semja það upp að nýju. Raforkulög þau, sem Alþ. hefur nú afgr., eiga ekkert skylt við frv. þeirra framsóknarmanna, heldur eru þau að öllu leyti byggð upp í samræmi við till. sósíalistans í n., sem skilaði séráliti. Samkv. þessum l. verða lagðar í sumar rafveitur til Selfoss og Eyrarbakka og síðar til Þykkvabæjar í Rangárvallasýslu. Samkv. þeim l. fá þorp og héruð ríkisábyrgð fyrir orkuverum og orkuveitum sínum, og samkv. þeim verður unnið að áætlun um, á hvern hátt landsmönnum verði bezt og hagkvæmast séð fyrir raforku, en ekki slegið föstu að órannsökuðu máli, að ein veita skuli lögð um allt Suðurland og Norðurland, né heldur að verð á raforku skuli vera það sama um allt land, hversu dýrt eða ódýrt sem er að afla hennar eða til hvers sem hún er notuð, eins og til var lagt í frv. meiri hl.
Þá mun þetta þing, sem Tíminn telur framkvæmdalítið, afgreiða þál. um stuðning til bæjarfélaga til togarakaupa, og skilja þeir það bezt, hvað slík aðstoð þýðir, sem í sjávarkaupstöðunum búa, ekki sízt þeir, sem vegna óheppilegra ákvarðana bæjarstjórna hafa verið sviptir slíku atvinnutæki, þegar bezt aflaðist.
Það skal játað, að ekki hefur alltaf tekizt eins vel og skyldi með afgreiðslu þeirra stórmála, sem þingið hefur látið frá sér fara. Er skemmst að minnast l. um almannatryggingar; sem var stórspillt í meðferð þingsins, þar sem lífeyrir til ekkna með börn á framfæri var lækkaður til muna. Sömuleiðis var l. um aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum hraðað um of í gegnum þingið. Við sósíalistar töldum, að frekar en að geta sýnt falleg l. á pappírnum þyrfti að ganga svo frá l., að fjárhagsgrundvöllurinn, sem framkvæmdirnar áttu að byggjast á, væri tryggður.
Í l. um stofnlánadeildina til aðstoðar sjávarútveginum var þetta tryggt með því, að Landsbankinn væri skyldaður til að leggja 100 millj. kr. til hennar. Hefði legið beint við að gera hið sama hvað viðvék aðstoð til verkamannabústaða. Við sósíalistar fluttum till. um þetta efni, að Landsbankinn yrði skyldaður til að lána byggingarsjóðnum allt að 20 millj. kr. Þessar till. okkar voru felldar. Þrátt fyrir það að hæstv. dómsmrh., Finnur Jónsson, og þeir Alþýðuflokksmenn viðurkenndu þörfina á þessu, sáu þeir sér ekki fært að greiða þessu atkv. að Landsbankanum forspurðum, og ekki var gott til gerðar, með því að aðalbankastjórinn var erlendis. Yfirleitt virðist sú skoðun ríkjandi meðal þm., annarra en okkar sósíalista, að það sé Landsbankinn, sem eigi að segja Alþingi fyrir verkum, en ekki Alþingi, sem eigi að stjórna fjármálapólitík þjóðbankans, og sér auðvitað hver maður annar, hversu fráleit þessi skoðun er. Það tókst sem sagt ekki betur með þessi l. en svo, að byggingarfélögum bæði verkamanna og samvinnubyggingarfélögum er heitin ríkisábyrgð á allt að 90% af kostnaðarverði húsanna, en engin trygging er fyrir því, að lán til bygginganna fáist, og hefur það sýnt sig, að sem stendur er mjög erfitt, ef ekki illmögulegt að afla slíkra lána. Fyrir einstaklingum, sem eru að koma húsi yfir sig, er ekki séð í þessum 1. Við sósíalistar höfum flutt frv. á þessu þingi um, að stofnuð skyldi ný veðdeild við Landsbankann, sem réði yfir 60 millj. kr. og lánaði út á hús einstaklinga og samvinnufélaga, en það frv. hefur ekki fengizt afgreitt. Fyrir einstaklingana verður því ekki í annað hús að venda en til okraranna, eins og fyrr. Því verður ekki þess vart, að Landsbankinn breyti um stefnu í þessu efni. Það gerir hann ekki ótilneyddur, og honum vex óðar fiskur um hrygg, er hann verður þess áskynja, hvernig meiri hluti þings tekur við skipunum hans. — En þrátt fyrir þessi mistök á afgreiðslu sumra mála, sem ég hef nú minnzt á, verður það ekki af skafið, að Alþingi það, er nú situr, hefur verið eitt hið stórvirkasta, og þar með er hrakinn sá óhróður Framsfl.
Ég skal svo víkja nokkrum orðum að því máli, sem varðar okkur mestu. Ég á hér við herstöðvamálið, en það er kunnara en svo, að það þurfi að rekja, og í því máli eru allir flokkar þingsins að Sósfl. einum undanskildum undir sök seldir og Framsfl. þó fyrst og fremst.
Bandaríkin skuldbundu sig til að hverfa á burt frá Íslandi með allan herafla sinn, strax og ófriðnum lyki. En í stað þess að standa við það loforð hafa þau farið fram á að fá hér herstöðvar til langs tíma. Þessari málaleitun þeirra hefur verið neitað afdráttarlaust, eins og skýrsla sú um málið, sem hæstv. forsrh. hefur birt, ber með sér. En það dugir engan veginn að láta hér við sitja. Málið er enn ekki á enda kljáð. Enn hefur ekki verið fallið frá landakröfum á hendur okkur Íslendingum. Vér verðum að krefjast skýlausrar yfirlýsingar þings og stj. um, að ekki verði orðið við landakröfum nokkurs erlends ríkis, og jafnframt að krefjast þess, að Bandaríkin verði á burt með her sinn þegar í stað. — Ég þarf ekki hér að lýsa því, hvers virði það er oss Íslendingum, að öllum kröfum til landa verði vísað á bug, hvaðan sem þær koma. Um það hafa fjallað mér færari menn, og mundi ég þar lítið um bæta, enda er saga þjóðarinnar í því máli ljósasti votturinn. En það fer ekki hjá því, að vér Íslendingar erum að verða að viðundri í heiminum. Í þessu máli, sem allur heimurinn fylgist með, virðumst við furðu tómlátir, svo tómlátir, að ekki fer hjá því, að það sæti undrun. Ég saka ekki þjóðina um þetta tómlæti, því að slíkt ætti sér enga stoð. Tómlætið er hjá ráðamönnum þjóðarinnar. Alþm. hefur verið gefinn kostur á að láta í ljós álit sitt í þessu máli. Stúdentar hér í Reykjavík hafa sent þeim öllum bréflega fyrirspurn, sem hljóðaði svo: „Teljið þér, að Íslendingar eigi að veita nokkru erlendu ríki herstöðvar á Íslandi?“ Fyrirspurninni skyldi svarað fyrir 7. apríl. Og hvernig hafa hv. alþm. brugðizt við þessu. Af því er ekki að státa. Þegar frá eru taldir allir þm. sósíalista, einn þm. Alþfl., einn þm. Framsfl. og 3 þm. Sjálfstfl., sem allir hafa svarað spurningunni neitandi, og 3 þm. Framsfl., sem svöruðu, að þeir gætu ekki tekið afstöðu til málsins, þá hafa allir aðrir þm., 34 að tölu, kosið að hundsa stúdentana og hafa ekki svarað.
Það er sannarlega tímabært fyrir þjóðina að fylgjast með þessu máli og veita því athygli, að meðan mótmælum gegn afsali lands í hendur erlendu ríki rignir niður frá þjóðinni, þá telja 17 þm. Sjálfstfl., 6 af 7 þm. Alþfl. og 10 þm. Framsfl. þetta mál ekki þess vert, að þeir vilji taka afstöðu til þess. Framsfl. hefur þó nú tekið afstöðu í þessu máli. Framsfl. er eini flokkurinn, sem hefur beinlínis lýst yfir því, að hann vilji leigja erlendum her herstöðvar hér á landi, ofurselja hluta af ættjörðinni undir erlend yfirráð, undir yfirráð Engilsaxa, eins og Hermann Jónasson lýsti svo greinilega hér áðan, er hann gerði grein fyrir stefnu Framsóknar um sérstakt samkomulag við Engilsaxa um hervernd landsins. Framsfl. sýnir sig með því rakinn landráðaflokk, sem vill breyta Íslandi úr því sjálfstæða lýðveldi, sem þjóðin nú hefur gert það að, í raunverulega nýlendu, í herstöð fyrir erlend stórveldi til hagnýtingar í hernaðarfyrirætlunum þeirra. Það vantar ekki brjóstheilindin hjá þessum mönnum, sem af ráðnum hug vilja ofurselja frelsi þjóðarinnar, að þeir skuli dirfast að taka sér orð eins og sjálfstæði Íslands í munn. Við kosningarnar í vor verður þjóðin að heimta skýlaus svör af frambjóðendum í þessu máli. Hverjum þeirra er vorkunnarlaust að gera grein fyrir afstöðu sinni til þess, og ég veit, að í þessu máli þarf ég ekki að vísa þjóðinni á veginn. Hún þekkir hann og mun halda hann nú eins og fyrr. — Góða nótt.