08.03.1946
Sameinað þing: 32. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í D-deild Alþingistíðinda. (4311)

97. mál, afnotagjald útvarpsnotenda

Þorsteinn Þorsteinsson:

Hv. þm. Barð. minntist á það í ræðu sinni, að þótt sú till. á þskj. 164, sem hér liggur fyrir, yrði samþ., þá væri það engin skylda ráðh. að fara eftir henni. Þetta er raunar engin nýjung. Þessi till. á þskj. 164 fer fram á það að skora á ríkisstj. að hækka ekki afnotagjald þeirra útvarpseigenda, er hafa straumtæki. En ef ætlunin hefði verið að gera ráðh. skyldugan til að fara eftir ályktuninni, þá hefði hún verið orðuð þann veg, að lagt væri fyrir ríkisstj., en hér er einungis skorað á ríkisstj. Hér er aðeins farið fram á, að hæstv. Alþ. sýni vilja sinn um þetta mál, og það hefur verið venja hingað til, að ríkisstj. færi eftir meirihlutavilja Alþ. Ég segi fyrir mig, að ég vil ekki væna ríkisstj. um það, að hún muni ekki fara eftir vilja Alþ. — a. m. k. að óreyndu. Ég verð að segja það, að hin rökst. dagskrá á þskj. 412 er þannig orðuð, að ég get tæplega fylgt henni. Vil ég nú lesa kafla úr henni, með leyfi hæstv. forseta : „ — og að þáltill., sem hér liggur fyrir, getur ekki, þótt samþykkt yrði, skert á nokkurn hátt rétt ráðh. til þess að ákveða gjaldið samkvæmt lögum, sér Alþingi ekki ástæðu til frekari aðgerða í málinu og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“ Þetta er rétt, að ráðh. er skylt að hlýða l., en það nær engri átt, að Alþ. gæti ekki látið uppi vilja sinn fyrir því. Þess vegna finnst mér, að þessi rökst. dagskrá ætti ekki að koma til atkvæða. En nóg um það. Ég vil ekki lengja þessar umr. frekar en þörf er á. Ég tel, að við alþm. höfum fyllsta rétt til að láta í ljós vilja okkar og segja álit okkar um þessa hluti. Ég er áður búinn að tala um aðstöðumismun þeirra, sem nota rafhlöðutæki og rafmagnstæki, og vil ekki endurtaka það. Einnig hef ég minnzt á það, að þeir, sem nota rafhlöðutæki, greiða eiginlega tvöfalt gjald. Þeir verða að kaupa dýra rafgeyma og þurrhlöður og skapa þannig töluvert af þeim gróða, sem viðtækjaverzlunin hefur. Helztu rök andstæðinganna hafa verið þau, að erfitt væri að annast innheimtu tvenns konar gjalda. Ég hef líka áður sýnt fram á, að auðvelt væri að yfirstíga þann erfiðleika. Það er einföld aðferð að skipa svo fyrir, að allir verði að greiða fullt gjald nema t. d. þeir, sem sýnt geta vottorð frá hreppstjóra, að þeir hafi rafhlöðutæki.

Að öllu þessu máli athuguðu tel ég rétt að fylgja till. meiri hl., þar sem litlar líkur eru til, að þáltill. sjálf nái fram að ganga, en að henni felldri skora ég á hv. þm. að fylgja brtt. á þskj. 425.