08.03.1946
Sameinað þing: 32. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í D-deild Alþingistíðinda. (4321)

97. mál, afnotagjald útvarpsnotenda

Menntmrh. (Brynjólfur Bjarnason):

Mér finnst dálítið ástæðulaus síðari hluti ræðu hv. þm. vegna þess að gert hefur verið ráð fyrir, að ríkissjóður þyrfti ekki að leggja einn eyri til útvarpshallarinnar. Útvarpið stendur undir því sjálft. Hins vegar hefur verið ákveðið að hækka afnotagjaldið um 40 kr., og hafa engar kvartanir komið um það frá útvarpsnotendum. Ef þm. heldur, að auðveldara verði að afla fjár til þessarar byggingar seinna, þá er það ábyggilega ekki rétt. Nú er einmitt tækifærið. Við getum með tiltölulega lítilli fyrirhöfn aflað þessa fjár nú. Hitt er svo annað mál, hvenær byrjað verður á verkinu og hvernig hagnýta skuli vinnuaflið. Það hefur verið um það rætt, hvort hefja skuli framkvæmdir næsta sumar. Ég geri ráð fyrir, að svo verði ekki, því að hagnýta verður vinnuaflið annars staðar, þar sem talið er, að framkvæmdir séu enn meir aðkallandi. En samt er jafnmikil nauðsyn, að þetta verði gert.