08.03.1946
Sameinað þing: 32. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í D-deild Alþingistíðinda. (4322)

97. mál, afnotagjald útvarpsnotenda

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég þarf ekki að orðlengja þetta mikið, en mér heyrðist, að hv. fræðslumálaráðherra segði, að engar kvartanir hefðu komið frá hlustendum. En inni á lestrarsal liggur fyrir umkvörtun. (Menntmrh.: Ég skal skjóta því inn í til að tefja ekki umr., að ég held, að það sé aðeins samanburður frá þeim, sem nota straumtæki). Þetta má vera satt. Ég vil benda á, til að losna við meira þjark, að eftir þáltill. okkar liggur málið þannig fyrir, að það hefur lítil áhrif á það, hvort útvarpshöllin verði byggð eða ekki.

Ég efast ekki um, að ráðh. gæfi þá undantekningu, sem farið er fram á. Ég vil því leggja til og tel það heppilegast, að þingheimur felldi hina rökst. dagskrá og léti fara sömu leið till. meiri hl. n. Ég tel það skynsamlegustu aðferðina.