24.04.1946
Sameinað þing: 38. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í D-deild Alþingistíðinda. (4365)

210. mál, herstöðvamálið

Flm. (Hermann Jónasson) :

Já, ég þekki náttúrlega þessa vinnuaðferð. Þeir, sem greiða atkv. með því að vísa málinu til utanrmn., þeir greiða þar með atkv. með því, að málið fái ekki afgreiðslu á þessu þingi. Það er búið að draga að taka þessa till. fyrir, þar til vitað er, að ekki eru nema 2–4 dagar eftir af þingtímanum, og þá á að senda hana til utanrmn. Þetta er ekkert annað en að neita að taka málið fyrir, og þeir þm., sem greiða atkv. með því, að málinu sé vísað til n., greiða atkv. með því að halda leyndinni áfram yfir málinu. Það er það, sem er gert, og það mun sýna sig í reyndinni, að það verður svo.

Hæstv. forsrh. segir, að það sé ekki í samræmi við umgengnisvenjur milli vinveittra þjóða, að það sé bara, sem fram hefur farið milli ríkisstj. um þetta mál. Við skulum ekki vera að deila um það hér, en það liggur fyrir, að Bandaríkjastjórn lýsti yfir því, meira að segja á fyrsta stigi málsins, að það mætti gefa út tilkynningu um málið bæði í Washington og hér, og þá get ég ekki séð, hvaða leyndardómur hvílir yfir því, eftir að Bandaríkjastjórn er búin að gefa slíkt leyfi. Það stóð fyrir nokkru í dönsku blaði, ég held í Politiken, að Bandaríkjastjórn hefði beðið um herstöðvar hér, en það má bara ekki skýra opinberlega frá því á Íslandi. Þess vegna er þetta ekki annað en fyrirsláttur, og Bandaríkin geta vitanlega ekkert haft á móti því, eftir að búið er að margendurtaka það í allri heimspressunni og sagt eftir stjórn Bandaríkjanna, að hún hafi beðið hér um herstöðvar. Ég get ekki heldur séð, hvaða er hættulegra fyrir þetta mál en að sögusagnir breiðist út, en menn fá ekki að vita sannleikann um málið sjálft. Annars geri ég ráð fyrir því, að eftir að komið er fram á nótt og eftir að búið er að draga að taka málið fyrir margar vikur, að það sé öllum ljóst, að það er aðeins gert til að svæfa málið í n., og þeir, sem greiða atkv. með því, greiða atkv. með því, að málinu sé haldið leyndu áfram, en ég mun þá sjá um, að málið verði rætt á öðrum vettvangi, þar sem þm. verða að svara til saka.

Og það eru satt að segja rökleysur frekar en rök á undarlega háu stigi, þegar hæstv. forsrh. stendur upp hér á hæstv. Alþ. og ætlar að færa rök fyrir því, hvers vegna á að halda leyndu stærsta máli þjóðarinnar fyrir henni og þeim bréfaskiptum, sem farið hafa á milli hans og bróður hans, sendiherrans í Washington, og segir, að það sé ekki venja milli ríkja að birta slík skjöl. En ég er ákaflega hræddur um, að þau rök kunni að þykja léleg á metunum og þjóðin eigi erfitt með að skilja þau. Því að hvað er það í þessu máli, sem ekki má vitnast? Hvað er svo hættulegt í málinu, að það sé brot á umgengnisvenjum að segja heiminum frá því? Og eins og ég sagði áðan, færi bezt á því allra hluta vegna að láta það koma fram, sem ríkisstj. kann að hafa gert, og þjóðin fái síðan að dæma um það og málið í heild. Og eins og ég sagði áðan, þá er beinlínis ætlunin að koma málinu fyrir kattarnef á þann hátt að vísa því til n., þar sem á að svæfa það. Eða vill hæstv. forseti lýsa því yfir, að það mál komi frá utanrmn. eftir 2 daga eða áður en þingi lýkur?