24.04.1946
Sameinað þing: 38. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í D-deild Alþingistíðinda. (4375)

210. mál, herstöðvamálið

Sigurður Thoroddsen:

Herra forseti. Ég skal að gefnu tilefni taka fram, að Sósfl. hefur margkrafizt þess, að skýrsla yrði gefin út í þessu máli. Og ég vil leyfa mér að spyrja, hvort ekki megi vænta skýrslu um málið. Þjóðin á heimtingu á að fá skýrslu um málið frá ríkisstjórninni. En frá mínu sjónarmiði er ekki nóg að fá skýrslu um það, sem fram hefur farið. Það þarf að krefjast þess, að Bandaríkin fari burt með herafla sinn hér á landi. Nú vil ég spyrja hæstv. forsrh., hvað stjórnin hefur gert í þessu máli, hvort stjórnin hefur farið þess á leit, að Bandaríkin dragi herafla sinn burt, eða hvort hún hafi mótmælt dvöl Bandaríkjahersins á Íslandi.