29.04.1946
Sameinað þing: 44. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 383 í D-deild Alþingistíðinda. (4385)

210. mál, herstöðvamálið

Flm. (Hermann Jónasson) :

Ég er nú búinn að tala um þetta mál, og ætla aðeins að gera örstutta aths.

Um till. sjálfa hef ég ekki ástæðu til að segja mikið. Það hefur verið nokkuð rætt um hana áður, t. d. í útvarpinu, en eins og gengur og gerist, er þar ýmsu snúið öfugt, ekki síður en í öðrum umr., og skal ég ekki fara að rifja upp þá útúrsnúninga. Það verður áreiðanlega tækifæri til þess á öðrum grundvelli, og skal ég ekki tefja þ. með því, þar sem svo áliðið er þingtímans. Ég vil vekja athygli á því, að í till. er talað um að gefa skýrslu á opnum þingfundi, en ekki talað um að gera hitt á opnum þingfundi. Og hvað sem grg. um málið liður, þá er vitanlega stjórnin ekki bundin við annað en orðalag þáltill. En ég vil benda á, að þegar lesið hefur verið upp úr grg., hefur jafnan verið lesið aftur að þessum kafla:

„Sennilega verða og tvær umræður um till. þessa, og getur þá ríkisstj. skýrt málið fyrir nefnd þeirri, er um málið fjallar. Verður að sjálfsögðu tekið fullt tillit til allrar rökstuddrar varfærni um afgreiðslu þess.“

Skýrar er ekki hægt að ,tala í grg. sem rökstuðning fyrir því, sem fram kemur í tillögunni, enda vitað, að um 3 aðferðir er að ræða. Í fyrsta lagi að birta öll þau skjöl, sem samþ. fæst til að birta, eins og við höfum gert hér áður. Í öðru lagi fyrir þm., sem ekkert leyfi þarf til, og svo í þriðja lagi með opinberri skýrslu. Og loks má svo nota þessar aðferðir allar þrjár saman. T. d. hefur nú verið birt eitt af símskeytunum, jafnhliða því, að ríkisstj. hefur gefið út opinbera tilkynningu um málið, sem hún hefur sent til Bandaríkjastjórnar. En ég ætla ekki að segja meira um það, þar sem ég hef aðeins leyfi til stuttrar aths. En viðvíkjandi því, hvort við eigum að gerast meðlimir hinna sameinuðu þjóða, vil ég ekki segja annað en það, að ég lít svo á, að sú beiðni, sem send var til San Fransisco, sé úr sögunni um leið og henni var neitað, þannig að ekki liggi fyrir frá Alþ. nein samþykkt um það á þessu stigi, að við gerumst meðlimir hinna sameinuðu þjóða. Og sízt af öllu vil ég, að litið sé svo á, að það liggi fyrir í þeirri grg., sem kom fram í símskeytinu, sem Bandaríkjastjórn var sent og gefur til kynna, að við álítum, að hér þurfi að vera herstöðvar. Ég vil sérstaklega vekja athygli hv. þm. einmitt á þessu atriði. Ég álít þess vegna, að til þess að við getum öðlazt sess meðal hinna sameinuðu þjóða, þurfi að liggja fyrir ný viljayfirlýsing frá þinginu, sem ekki sé til staðar, því að það, að hún sé innifalin í símskeyti því, sem Bandaríkjastjórn var sent, álit ég, að hafi ekki við rök að styðjast.