29.04.1946
Sameinað þing: 44. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í D-deild Alþingistíðinda. (4386)
210. mál, herstöðvamálið
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Þegar till. þessi var hér síðast til umr., hafði flm. hennar, hv. þm. Str., hér allstór orð og mörg hrópyrði í sambandi við herstöðvamálið og beindi sérstaklega að okkur sósíalistum brýningarorðum og reyndi að tortryggja afstöðu flokks okkar. Ég þarf ekki, vegna þess að nú er komið rétt að þingslitum, að eyða löngum tíma, sem ég hafði þó hugsað mér að gera, í að rekja það, sem þessi hv. þm. sagði viðvíkjandi afstöðu okkar sósíalista til þessa máls, enda hef ég gert það að nokkru í útvarpsumr. um málið. En það er annar, þáttur þessa máls, sem mér þykir rétt að minnast hér nokkuð á vegna þeirra ummæla, sem fram hafa komið undanfarna daga um afgreiðslu málsins.
Þm. Alþfl. hafa mjög haldið á lofti, bæði í útvarpi og þó sérstaklega í blaði sínu, Alþýðublaðinu, að flokkur þeirra hafi tekið forustuna um lausn þessa máls. Og ekki nóg með það, heldur hefur Alþfl., og það er aðalatriði málsins, reynt að tortryggja afstöðu okkar sósíalista og reynt að láta í það skína, að við hefðum í þessu máli yfirleitt ekki aðra afstöðu en þá að feta í fótspor Alþfl. Ég vil, af því að þetta er til umr., algerlega mótmæla þessu og skal benda á nokkur atriði til sönnunar máli mínu.
Það er flestum hv. þm. kunnugt, að meðan á afgreiðslu þessa herstöðvamáls stóð, og það er reyndar ekki liðið hjá, tóku nokkrir Alþýðuflokksmenn sig saman og gáfu út blað hér í höfuðstaðnum, Útsýn. Þeir, sem að því stóðu, hafa um langan tíma verið félagar í Alþfl. og eru það enn, og skyldi maður því ætla, að þeir menn, sem að því blaði stóðu, hafi vitað, hvernig var umhorfs á Alþýðuflokksheimilinu um afstöðu til þessa máls. Í Útsýn er greinilega sagt, að Alþfl. hafi skipzt mjög klofinn um afstöðu til málsins. Og það er kveðið svo fast að orði í þessu blaði, að það er frá því sagt, að það sé vitað, að í þingmannahópi flokksins séu menn, sem séu ákafir samningsmenn við Bandaríkin um leigu á herstöðvum. Og það var líka öllum kunnugt, að þann mánaðartíma, sem það tók, frá 1. okt. og fram til 5. nóv., höfðu fulltrúar okkar sósíalista margoft lýst yfir því, að afstaða flokks okkar væri skýr í málinu, að við óskuðum eftir, að svar okkar yrði skýrt neitandi. En frá Alþfl. fékkst aldrei nein skýr afstaða allan þennan tíma. Mér er ekki kunnugt um það, að frá neinum flokki allan þennan tíma lægi fyrir skýr afstaða um afgreiðslu málsins. Mér finnst óhjákvæmilegt, þegar þetta mál er rætt hér, að rifja upp þennan þátt þessa máls. En sagan er heldur ekki öll sögð með þessu. Þegar svarið frá 5. nóv. var gefið og Alþfl. lét þess þá getið, sem rétt er, að það hafi verið frá hans hendi og hann greitt atkv. með orðsendingunni eins og hún var, í trausti þess, að svarið bæri að skilja svo, að við værum ekki til viðtals um samninga til langs tíma, þá vita fulltrúar Alþfl., sem að afgreiðslu málsins stóðu, mæta vel, að fulltrúar okkar sósíalista höfðu margtekið það fram áður og einnig þá, að þeir vildu ekki aðeins skírskota til þess, að ekki kæmi til greina samningur á grundvelli upphaflegu nótunnar til langs tíma, heldur einnig ekki til neins tíma. (Forseti: Ég vil mælast til þess, að menn fari ekki hér að lokum að föndra út yfir málefnið). Þetta mál er hér til umr., og verður ekki hjá því komizt, að mínum dómi, að víkja að þeim ummælum, sem hér hafa fallið um þetta mál, og leiðrétta það nokkuð. Ég fyrir mitt leyti get ekki unað því, að við þetta mál sé skilið á þá lund, sem hér hefur verið gert, og þá sérstaklega í Alþýðublaðinu, án þess að ég láti hér fram koma skýrt, hvernig þetta hefur gengið til. Ég hef tilefni til þess, svo sannarlega.
En það, sem er svo alvarlegast í þessu máli, er það, eins og fram kom í skýrslu hæstv. forsrh., að engin trygging er fyrir því, að þetta herstöðvamál sé úr sögunni enn. Enn hefur ekki fengizt svar um, að þetta mál verði látið niður falla nema í bili, og ég tel því, að enn þá sé fyrir hendi sama þörfin og áður að fulltrúar flokkanna lýsi því einmitt yfir, hver afstaða þeirra sé til herstöðvamálsins almennt, ekki aðeins takmarkað til þess þáttar, sem afgreiddur er. Við sósíalistar höfum lýst því yfir, að við óskum eftir skýru nei viðvíkjandi allri beiðni um herstöðvar. Mér er ekki kunnugt um, að slíkt nei liggi fyrir frá Alþfl., sem þykist hafa forustuafstöðu, og heldur ekki kunnugt um, að hv. þm. Str., sem er flm. þeirrar till., er hér liggur fyrir, hafi fyrir hönd flokks síns gefið yfirlýsingu, sem er tvímælalaus um afstöðu flokks hans gagnvart málinu sjálfu. Það er svo augljóst mál, að þáltill., sem hér liggur fyrir, er nú þegar orðin hégómi einn, enda hefur auðvitað barátta Framsfl. í þessu máli ekkert verið annað en hégómi með kröfu um að birta þessi skjöl, eins og hann hefur sett þá kröfu fram. En hitt er vitanlega aðalatriði málsins, að það komi skýrt fram, hvort menn eru til viðtals um það að leigja herstöðvar í landinu eða ekki.
Ég vil að lokum benda á það, að einmitt Alþýðuflokksmennirnir, sem stóðu að þessu blaði, sem ég minntist á, Útsýn, skildu mæta vel á sínum tíma, að af hendi Alþfl. hafði ekki verið tekin afstaða til herstöðvamálsins nema viðvíkjandi þeim þætti, sem sneri að leigu til langs tíma.
Það kann vel að vera, að þessar aths. mínar verði ekki vel séðar. En eins og ég tók fram, hef ég sett þær fram eingöngu vegna þess, að ég get ekki þolað, að jafnherfilega sé farið með rangt mál og gert hefur verið af fulltrúum Alþfl. og þó sérstaklega í Alþýðublaðinu.