29.04.1946
Sameinað þing: 44. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 385 í D-deild Alþingistíðinda. (4387)

210. mál, herstöðvamálið

Stefán Jóh. Stefánsson:

Ég skal fyrst og fremst leyfa mér að geta þess, að ég var að vísu ekki staddur hér á Alþ., þegar lokaður fundur var haldinn um það atriði, hvort Ísland ætti að segja möndulveldunum stríð á hendur eða ekki. En mér er, eins og öðrum þm., kunnugt um þá þingmannasamþykkt, sem gerð var á Alþ. 25. febr. síðastliðinn. Mér skilst, að þar hafi verið sagt, að Alþ. ályktaði, að það sé Íslendingum mikil nauðsyn að verða þegar þátttakandi í samstarfi hinna sameinuðu þjóða. Hér er í rauninni um ákveðna viljayfirlýsingu að ræða af hálfu alþm. allra, og þessi viljayfirlýsing hefur verið tilkynnt fulltrúum stórveldanna. Það má því gera ráð fyrir, að litið verði svo á, að þm. á Íslandi hafi samhljóða látið í ljós vilja sinn um það að gerast aðili í bandalagi hinna sameinuðu þjóða. Hitt vildi ég segja, að mér finnst, þegar að því kæmi að ganga í bandalag hinna sameinuðu þjóða, að þá þyrfti formlegra samþykki Alþ. um það atriði en felst í þeim yfirlýsingum, sem þegar liggja fyrir um þetta atriði.

En ég hef nú ekki kvatt mér hljóðs til þess að láta þetta koma fram, heldur var það ræða hv. 6. landsk., sem kom mér til að segja fáein orð, og skal ég lofa hæstv. forseta að reyna að stytta mál mitt eins og mér framast er unnt, til þess að tefja ekki umr., þótt ræða hv. 6. landsk. gæfi fullt tilefni til þess, að talað væri rækilega við hann og félaga hans um þetta mál.

Ég vil þá aðeins taka fram út af því, sem fram kom í ræðu hv. 6. þm. Reykv. varðandi blaðið Útsýn, að það blað hefur ekki verið gefið út af Alþýðuflokknum. Og þótt Alþýðuflokksmenn skrifuðu í það um ýmis málefni, voru það ekki neitt sérstaklega raddir Alþfl. um þetta atriði, sem fram komu í þessum skrifum, og eins hitt, að mér er kunnugt um það, að að blaðinu stóðu líka menn, sem standa utan við Alþýðuflokkinn. Og ef þeir kunna að dylgja í garð Alþfl. um sölumennsku og að í Alþfl. væru einhverjir þeir menn, sem vildu selja landið, þá eru það ósvífnar dylgjur af hendi Þjóðviljans.

Hv. 6. landsk. sagði, að Alþfl. hefði aldrei tekið afstöðu í þessu máli. Þetta er fjarri sanni, því að hinn 6. nóv. s. l. gaf Alþfl. skýlausa yfirlýsingu um þetta mál. Hitt er rétt, að á fundi 5. nóvember tók Alþfl. afstöðu til bréfs hæstv. forsrh., en á eftir lýstu fulltrúar úr flokknum afstöðu og vilja Alþfl. Þetta er óhrekjanlegt. Því er það ekki rétt hjá hv. 6. landsk., að Alþfl. hafi verið meira hikandi en hinir stjórnarflokkarnir. Afstaða hans hefur verið og er skýrt mörkuð varðandi þetta mál. Alþfl. kannast ekki við, að það sé viðeigandi að vera með fullyrðingar og getsakir í garð annarra flokka. Það hefur flokkur sósíalista látið sér sæma.