29.04.1946
Sameinað þing: 44. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í D-deild Alþingistíðinda. (4411)

210. mál, herstöðvamálið

Menntmrh. (Brynjólfur Bjarnason):

Ég vil beina þeirri fyrirspurn til þeirra hv. þm., sem sæti áttu í þeirri n., sem skipuð var, hvort Sósfl. hafi ekki lagt til, að neitað yrði afdráttarlaust. Þetta var borið upp á þann hátt, sem venja er til, þar sem fulltrúar þingflokka eiga sæti. Atkvgr. fór ekki fram, en fulltrúar allra hinna flokkanna neituðu að fallast á till. sósíalista.