22.10.1945
Neðri deild: 14. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í C-deild Alþingistíðinda. (4418)
38. mál, söluverð fasteigna í sveitum
Jón Pálmason:
Ég skal ekki ræða þetta mál mikið, en ég vil lýsa ánægju minni yfir því, að hv. þm. Mýr. hefur eftir 9 ára baráttu fallizt á skoðun okkar sjálfstæðismanna í þessu máli. Það er ætíð ánægjulegt, þegar menn snúa á rétta leið, en dálítið þykir mér undarlegur flutningur þessa máls hér: Eins og kunnugt er, var þegar í byrjun þings flutt frv. um sama efni í efri deild af hv. þm. Dal. Nú má vitanlega vísa þessu máli til hv. landbn, og láta það bíða þar, þangað til hitt frv. er komið frá efri deild. — Rétt er að athuga það varðandi þetta frv., að það felur í sér breyt. á tvennum lögum, og mun það naumast geta staðizt að minni hyggju.