07.02.1946
Sameinað þing: 25. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í D-deild Alþingistíðinda. (4456)

103. mál, húsaleiga

Gísli Jónsson:

Mér þykir rétt, þar sem hv. þm. Str. taldi það samboðið stöðu sinni að tala um dóm, að upplýsa það, af hverju sá dómur fór eins og hann fór. Hann fór svo af því, að þm. Barð. þótti ekki sómi að því, sem hv. þm. Str. þótti sómi að, að láta sækja fjölda manna, fjölda kjósenda úr sýslunni til þess að setja á sakarannsókn mánuð eftir mánuð. Dómurinn fór svo meðal annars vegna þess, að þm. Barð. gerði aldrei tilraun til að verja sig, og meðal annars vegna þess, að eitt áhrifamikið skjal kom ekki fram, og málafærslumaður minn lýsti yfir því, að ef það hefði verið birt, þá hefði dómurinn snúizt við, en ég taldi það fyrir neðan mína virðingu. En ég vil upplýsa það, að ummælin, sem ég var dæmdur fyrir, voru aldrei dæmd dauð og ómerk, ummæli, sem sögð voru um hv. þm. Str. En hvers vegna lét ekki hv. þm. Str. það fylgja með? Og ég get upplýst það, að hv. þm. Str. varð sér svo mikið til skammar á þrem fundum í Barðastrandarsýslu, að hann var svo að segja hrópaður út. Þetta hefði líka átt að fylgja með sögunni. Ég vil nota tækifærið hér til að lýsa yfir því, að ummælin, sem hv. þm. Str. hafði eftir mér á þessum fundi, sem mest er talað um hér, eru algerlega röng. Ég vil hins vegar ekki deila við mann, sem kann svo lítið í siðfræði, að hann leyfir sér að brjóta helgustu skyldu þingmanna. Hann hefur reynt að fá mig til þess að segja frá málinu, svo að hann gæti varið sig og sagt: einnig þm. Barð. hefur brotið. — Hitt vita allir þm., að það er ekki rétt farið með þessi mál, sumpart eru þau slitin úr samhengi, og kemur þá allt annað fram en ég hef sagt. En þessi hv. þm. leyfir sér samt að hampa þessum málum í nýársboðskap sínum, þó að hann brjóti með því helgustu skyldu sína sem þm.