11.02.1946
Sameinað þing: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 412 í D-deild Alþingistíðinda. (4465)
117. mál, sænsk timburhús
Flm. (Bjarni Benediktsson) :
Herra forseti. Ég get látið mér nægja að vísa um þessa till. bæði til meginmáls till. og grg. hennar um þá rannsókn, sem þar er gert ráð fyrir, og ástæðurnar fyrir nauðsyn þess, að fyrir liggi áreiðanlegar skýrslur um það, hvort hagkvæmt sé að kaupa þessi sænsku timburhús eða ekki. Ég hef hugboð um það, að hæstv. ríkisstj. sé að gera ráðstafanir til þess, að slík rannsókn fari fram. Og síðan þáltill. þessi var fram borin, hafa nokkur sænsk hús verið flutt hingað, og er von á enn þá fleirum. Það má því segja, að hægara sé nú en í upphafi virtist að koma þessari rannsókn fram. Ég tel því mikilsvert, að slík rannsókn og skýrslugerð, sem hér er farið fram á, verði framkvæmd, og legg áherzlu á það, að meginefni þáltill. verði samþ. Mér virðist eðlilegt, að þáltill. verði samþ. Hún er einföld, og ég tel ekki ástæðu til að vísa henni til n., nema því aðeins að víst sé, að sú n., sem fengi hana til meðferðar, afgreiddi hana fljótt. Ég get líka fallizt á að vísa þáltill. til hæstv. ríkisstj., ef slíkt þætti eðlilegra. En ég álít þó eðlilegra, að till. yrði samþ. nú þegar.