11.02.1946
Sameinað þing: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í D-deild Alþingistíðinda. (4486)
130. mál, flutningur hengibrúar
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég segi eins og hv. þm. Mýr., að það er dálítið undarlegt kapphlaup um þessa brú, og þó er það enn undarlegra, að þeir menn, sem vilja flytja hana á þennan eða hinn staðinn, skuli ekki hafa aflað sér upplýsinga um það, hvort hún geti komið að gagni á þeim stað, þar sem þeir vilja láta hana. Vegamálaskrifstofan hefur mælt og gert áætlanir um þau brúarstæði öll, þar sem talað er um að nota Ölfusárbrú og flm. tala um, og það er ekki nema nokkurra mínútna verk að sjá, hvaða á það er, sem er það breið, að þessi brú geti passað á hana. Engir af þessum mönnum, sem vilja flytja brúna, hafa fyrir því að athuga þetta, heldur gera þetta bara til þess að geta sagt við kjósendur: Við vildum fá brúna á þennan eða þennan staðinn. Allir vita, að það þýðir ekki að setja þessa gömlu brú þar, sem mikil er umferð. Þegar hv. fjvn. fær till. til athugunar, vænti ég þess, að hún fái hjá vegamálastjóra upplýsingar um þau brúarstæði, sem til greina koma. Vil ég leyfa mér að benda á einn stað, þar sem ég býst við að brúin passi. Það er á Tungnafljót hjá Króki í Biskupstungum. Þar vantar brú fyrir bæi, sem þurfa að koma sinni mjólk yfir ána. Gæti brúin enzt þar mörg ár, og ef hún að öðru leyti getur gengið, þá held ég, að það sé sú á, sem helzt kemur til greina. Líklega er hún varla nægjanlega löng, en ána mætti mjókka, hún er lygn þarna og þyldi það. — Á þetta vil ég benda hv. fjvn., þegar hún fer að athuga málið. Annars held ég, að við hv. þm. ættum allir að reyna, þótt við viljum flytja eitthvað fyrir kosningar, að gera okkur það Mikið far um að athuga málin, áður en við flytjum þau, að afla okkur upplýsinga hjá vegamálastjóra áður en við flytjum þau. Það er búið tvisvar sinnum að flytja till. um að setja brúna á Hvítá hjá Iðu, þegar vegamálastjóri segir hana 20–30 metrum of stutta til að vera þar. Nú er flutt till. um að flytja brúna á Hvítá hjá Bjarnastöðum og á fleiri staði, og allt ber að sama brunni. Málið órannsakað, flutt til að geðjast kjósendum, en gerir þá, er flytja, hlægilega.