27.04.1946
Efri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í C-deild Alþingistíðinda. (4500)
50. mál, ríkisborgararéttur
Bjarni Benediktsson:
Ég vil vekja athygli á því, að meiri hl. n. var á móti því að fara út í persónulegt mat, og ég álít, að deildin hafi með þessari atkvgr. sýnt, að hún er á sama máli og á móti því, að þessir menn verði dregnir þannig í dilka. Ég vil því mótmæla þessari aðferð við atkvgr.