23.04.1946
Sameinað þing: 37. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í D-deild Alþingistíðinda. (4518)
136. mál, brúargerð á Skjálfandafljóti
Frsm. (Björn Kristjánsson):
Herra forseti. Þetta mál er órannsakað í raun og veru, hvort tiltækilegt er að flytja efni gömlu Ölfusárbrúarinnar til þess að gera af því brú yfir Skjálfandafljót. Er því ekki hægt að mynda sér neina ákveðna skoðun á því, hvort rétt sé að flytja þangað þetta efni eða ekki. En um þessa brú á Skjálfandafljóti, ef reist væri, stendur dálítið öðruvísi á en um brú á Hvítá hjá Iðu, að brúin á Skjálfandafljóti, þegar til kemur, að hún verði byggð, er ætluð mest fyrir innansveitarflutninga, og þar verður lítið um að ræða þungar bifreiðar, eins og hins vegar eru líkur til yfir brú yfir Hvítá. Bárðardalur er ákaflega langur, og er byggð báðum megin dalsins. Og sveitamenn þar hafa öld eftir öld búið við það að geta ekki haft samgöngur sín á milli öðruvísi en með því að fara yfir ána án brúar, stundum hálfófæra. Sennilega hafa orðið þar slys, þó ég viti það ekki beint. En oft hefur sú á verið ófær. — Það eru meiri líkur til þess, að þessi gamla Ölfusárbrú eða efni hennar geti orðið nothæft á þessum stað heldur en á Hvítá. Og það er reynsla um það um brú, sem flutt var af Soginu upp að Hvítá hjá Hvítárvatni, að sá flutningur hefur, að því er ég bezt veit, gefizt vel og brúin komið þar að fullu gagni fyrir umferð léttra vagna.
Fjvn. telur ekki fært fyrir sig að ákveða, hvar heppilegast verði að endurreisa þessa brú, en leggur til, að ríkisstj. verði falið að ákveða um það í samráði við vegamálastjórnina. — Með þessum ummælum vil ég, fyrir hönd fjvn., leggja til, að málinu verði vísað til hæstv. ríkisstjórnar.