02.03.1946
Sameinað þing: 30. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í D-deild Alþingistíðinda. (4528)
137. mál, kaup á skipinu Pétursey
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Áður en mál þetta verður afgr., vil ég aðeins vekja athygli hv. fjvn. á því, þar sem hún hyggst nú að kaupa skip til minja og geymslu, hvort hún sæi sér ekki fært að festa kaup á hákarlaskipi til minja um þá veiði. Ég hygg, að ekki séu nú til nema tvö hákarlaskip gömul, svo að þar þarf að hafa hraðann á, eigi síðari tíminn að fá að sjá slíkt skip. Ég tel í rauninni ekki síður ástæðu til að kaupa og geyma hákarlaskip en áttæring. — Þessu vildi ég aðeins skjóta til hv. fjvn.