23.04.1946
Sameinað þing: 37. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 420 í D-deild Alþingistíðinda. (4545)
137. mál, kaup á skipinu Pétursey
Sveinbjörn Högnason:
Herra forseti. Ég þakka hv. fjvn. fyrir, að hún hefur þó tekið undir nauðsyn þess, að því sé komið í framkvæmd, að skip þetta eyðileggist ekki og að reynt sé að gera ráðstafanir til þess, að þetta skip varðveitist frá eyðileggingu. Hins vegar get ég ekki séð, að það sé eðlilegt að vísa þessari þáltill. frá með þeim röksemdum, sem hér eru fram settar, því að það var til þess ætlazt af n., eftir þeim formála sem er fyrir því gerður af n., að ríkisstj. geri það, sem stendur í þáltill. Ég sé því ekki, hvað er á móti því að samþ. till. sjálfa eins og hún er. Það er vitaskuld, að ríkisstj. kaupir ekki skipið, nema með beztu kjörum, sem hún getur að komizt. Og það er ekkert annað en það, sem sagt er í þáltill., aðeins að skipið sé fest í þessu efni. En ég veit ekki, hvað hv. frsm. fjvn. á við eða n. í heild með því að segja, að það muni vera hægt að ná þessu marki án þess að ríkisstj. festi kaup á þessu skipi. Ég sé ekki, ef á að varðveita skip þetta frá eyðileggingu, að hjá því verði þá komizt, að ríkisstj. nái eignarhaldi á skipinu, og ef hægt er að ná um það hagkvæmari kjörum en nú er vitað um, þá geri ríkisstj. það, og það er ekkert um annað rætt í þáltill. en að vernda skip þetta frá eyðileggingu. Og þar sem ríkisstj. hefur svo trausta menn að baki sér eins og hv. form. fjvn., sem leggur til, að þessu máli verði vísað til ríkisstj., þá finnst mér það þó traustara, að hún hafi fyrirmæli um það, að þetta skuli gert eftir vissum leiðum. Og ég sé engan eðlismun á þessum tveimur aðferðum, hvort till. verður samþ. eins og hún er eða hins vegar samþ. verður till. fjvn. eins og n. sjálf hefur gert grein fyrir afstöðu sinni til málsins og málið framkvæmt eftir því. En það er ekki venjuleg aðferð um meðferð þingmála um mál, sem ætlazt er til, að ríkisstj. komi í framkvæmd, að þeim sé vísað til ríkisstj., því að vanalega þýðir sú meðferð það að smíða nokkurs konar líkkistu utan um málin og kistuleggja þau og grafa. Ég veit hins vegar, að meiri hl. fjvn.-manna er með því að þetta skip verði varðveitt frá eyðileggingu. Og m. a. veit ég það um hv. form. n., sem sagði, að það hefði verið samþ. í n. að mæla með þáltill. með breyttu orðalagi, sem er um að athuga kostnaðinn við þetta. — Hvor till. því sem samþ. verður, sjálf þáltill. eða að vísa þáltill. til ríkisstj. þá er látið í veðri vaka, að það eigi að miða að því sama, að varðveita þetta skip frá eyðileggingu, og það er þá hreinni aðferð að samþ. þáltill. sjálfa. Ég get hins vegar ekki vel skilið hv. form. n., þm. Barð., sem er stórhuga maður og lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna í skipakaupum og öðru, að hann skuli vera svo ákaflega hræddur við kostnaðarhlið þessa máls, að ná þarna einu áraskipi í eigu ríkisins til þess að varðveita það fyrir sjómannastétt þessa lands, sem margir menn úr þeirri stétt óska eftir að varðveita, — ég get ekki skilið þennan ótta hjá hv. þm. Barð., með tilliti til stórhugar hans um að leggja út í skipakaup nú fyrir ríkisins hönd. Þess vegna þykir mér alleinkennilegt, ef menn eru hræddir við, kostnaðarins vegna fyrir ríkið, að festa kaup á gömlu áraskipi, sem vitanlega getur aldrei orðið stórfelldur kostnaður. Hins vegar er vitað, að það má ekki dragast, að þetta verði gert, ef það á að ná tilgangi sínum að kaupa þetta skip, því að það er ekki í notkun og hefur ekki verið um nokkurn tíma, og gengur það því úr sér, ef ekki er fest eignarhald á því og því komið til varðveizlu. — Ég get upplýst það, að við flm. þessarar þáltill. bárum hana fram af því í raun og veru, að vakin var athygli okkar á þessu máli af mætum manni, skipstjóranum á Esju. Og álít ég það óviðurkvæmilegan trassaskap að vernda ekki þetta skip frá eyðileggingu til þess að hafa það á Sjóminjasafni Íslands.
Þó að það sé með miklum velvilja, að fjvn. samkv. forsendum sínum gerir þá till. um afgreiðslu þessa máls að vísa því til ríkisstj., þá finnst mér myndarlegri afgreiðsla að samþ. þáltill. eins og hún er, þannig að lagt sé ákveðið til, að ríkisstj. skuli gera þessi kaup. Vildi ég því eindregið mælast til þess, að hæstv. Alþ. gæti á þessa afgreiðslu fallizt.