23.04.1946
Sameinað þing: 37. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í D-deild Alþingistíðinda. (4549)

137. mál, kaup á skipinu Pétursey

Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti. Ég skrifaði undir nál. með fyrirvara, og ég hefði viljað vísa málinu til ríkisstj. undir öðrum forsendum.

Í sambandi við ummæli hv. þm. V.-Sk., að þm. hafi ekki hugsað þetta mál mikið, þá er það þó aðalatriðið, hvort kaupa eigi þetta skip og fá það á sem ódýrastan hátt. Hitt er svo óvíst, hve mikið kostar að flytja skipið og byggja yfir það. Það má vera, að það sé menningarlegt atriði að varðveita svona skip. Alþ. hefur samþ., að varðveita skuli ýmsa gamla hluti, t. d. gamla bæi. Þetta er ofvaxið ríkisstj., að vernda slíka hluti, og ef þetta skip verður keypt, þá er sýnt, að önnur skip komi á eftir, hákarlaskipin og skúturnar, og ég held, að það þurfi athugana við, hvað mest virði er að varðveita. Hef ég því viljað orða þáltill. þannig, að ríkisstj. yrði falið að rannsaka þetta mál, en ekki setja henni fyrirmæli um að kaupa skipið. Þetta er minn fyrirvari, og vil ég, að ríkisstj. rannsaki þetta mái og athugi, hvort rétt sé að varðveita þetta gamla skip, Pétursey.