01.11.1945
Neðri deild: 20. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í C-deild Alþingistíðinda. (4578)

61. mál, byggingar- og landnámssjóður

Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta mál, því að í grg. er drepið á aðalatriði þess, og ég ætla, að hv. þdm. hafi kynnt sér hana. Ég sé því ekki ástæðu til að ræða þetta frekar, en legg til, að frv. verði vísað til landbn.