05.11.1945
Sameinað þing: 5. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í D-deild Alþingistíðinda. (4599)

47. mál, bændaskóli Suðurlands

Flm. (Jónas Jónsson) :

Herra forseti. Ég hef í grg. þessarar till. rakið aðalrökin fyrir því, hvers vegna hún er fram komin, og get ég því verið stuttorður.

Það hefur um mörg ár þótt allmikill ljóður á ráði Íslendinga, að þeir hafa alls ekki hlynnt að þessu mikla setri, Skálholti, sem var höfuðstaður landsins um margar aldir. Hefur þar við setið í þau 150 ár síðan skólinn var fluttur þaðan burtu, og hefur jörðin búið að því, sem einstakir bændur hafa þar gert, en þjóðfélagið hefur ekkert gert fyrir staðinn. Aftur á móti hefur Hólum í Hjaltadal verið sýndur sómi og viðurkenning, Þar hefur verið reistur bændaskóli, gerðar miklar jarðræktarframkvæmdir og reistar myndarlegar byggingar, og er eftir atvikum ekki annað hægt að segja en sæmilega sé séð fyrir Hólaskóla, úr því að hann breytti hlutverki sínu. Á síðasta þingi var samþ. að reisa bændaskóla í Skálholti, en sú n., sem hefur farið með þessi mál, mun hafa gert ráðstafanir til þess, að skólinn verði reistur langt frá gamla setrinu. Þetta held ég óráð og álít það sjálfsagða skyldu Alþ. jafnvel af sparnaðarráðstöfunum — að neita þessu. Úr því að ákveðið hefur verið, að skólinn yrði byggður í Skálholti, þá verður hann að standa þar, sem hinn forni skóli var. Ég hygg, að Alþ. geti varla gert sér grein fyrir því, sem hér um ræðir, ef bændaskólinn verði reistur bæjarleið frá gamla Skálholtsstað, þar sem mikil ræktun er, og verður jörðin vitanlega lögð undir bændaskólann, því að ekki er hægt að hugsa sér þetta tvískipt. Verður þetta þá til þess, að Skálholt sem hinn forni sögustaður fellur í enn meiri niðurníðslu en áður var. Þegar ákveðið var að reisa bændaskóla í Skálholti, hlaut tilgangurinn að hafa verið sá að halda uppi hinni sögulegu frægð staðarins, en sú aðhlynning verður minni en engin, ef svona verður að farið eins og n. hefur lagt til, vegna þess að höfuðsetur jarðarinnar verður þar sem skólinn stendur, en hitt setrið leggst í raun og veru í eyði. Viðvíkjandi því atriði, að til þess að ná í heitt vatn til skólans, verður að dæla því hina löngu leið upp á hæðina að húsum nýju skólabyggingarinnar úr Þorlákshver, þá munar hvort sem er engu á leiðinni að Skálholtsstað, auk þess sem vart hefur orðið við jarðhita í heimatúninu, og er það álit hæfra manna, sem vit hafa á þessum hlutum, að það hljóti að vera hægt að fá þaðan jarðhita, ef hans verði leitað. — Ég hygg þess vegna frá sögulegu og búskaparlegu sjónarmiði, að sjálfsagt sé að halda fast við gamla staðinn, en þar er túnstæði mjög gott og er túnið þar nú 800 hestar. Það var raunar engin tilviljun, að Skálholti var valinn þessi staður, því að landnámsmenn höfðu mjög góðan skilning fyrir slíku. Er útsýnið einmitt frá gamla Skálholti mjög tilkomumikið og mun ánægjulegra en frá þeim stað, sem nú er talað um að reisa skólann á. Ástæðan til þess að n. hefur valið skólanum stað á þessari eyðihæð, bæjarleið frá Skálholti, virðist vera sú, að hún hefur tekið of mikið tillit til þess, að einstakir kirkjunnar þjónar hafa látið sér detta í hug, að Skálholt væri og ætti að vera helgað kirkjulegri starfsemi, og voru þeir því á móti því, að búnaðarskólinn yrði reistur heima í Skálholti. Þetta er misskilningur, því að um langan tíma hefur prestastéttin ekkert gert til þess að halda við kirkjulegri starfsemi á staðnum, og í öðru lagi er að sjálfsögðu engin ástæða til að ætla, að þótt bændaskóli yrði þar reistur, þyrfti það að þrengja að kirkjulegri menningu á staðnum.

Finnst mér svo ekki ástæða til að fjölyrða um þetta mál, en þótti rétt, að einhver okkar, sem er sæmilega kunnugur sögu og staðháttum þarna, gerði síðustu tilraun til þess, að þetta villispor yrði ekki stigið, og hef ég þess vegna flutt þessa till.