05.11.1945
Sameinað þing: 5. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í D-deild Alþingistíðinda. (4601)

47. mál, bændaskóli Suðurlands

Ingólfur Jónsson:

Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta mál. En til þess að koma þessu máli fram til sigurs, þá beitti hv. 2. þm. Árn. þeirri höfuðröksemd, að það ætti að endurreisa Skálholt. Á þessu vann hv. þm. málið. En ég geri ráð fyrir, að þeir hv. þm., sem greiddu atkv. á þeim forsendum, geti ekki sætt sig við, að skólinn verði fluttur til og reistur langt frá Skálholti. Þessir sömu hv. þm. geta ekki látið bjóða sér það, að skólinn verði reistur annars staðar en heima á sjálfum staðnum. Nú á að reisa þarna nýbýli, meira en 1 km. frá Skálholti, á óræktarmóum, og verður þess langt að bíða, að túnin nái saman, og þá verður Skálholt orðið að nokkurs konar hjáleigu frá þessu nýbýli. — Hv. 2. þm. Árn. sagði, að það þyrfti að ræsa fram mýrina, og það er rétt, en slík ræktun er mjög erfið og kostnaðarsöm og tekur langan tíma, og væri því eðlilegra að nota gamla túnið fyrst. — Einnig mundi vegagerð þarna verða ærið kostnaðarsöm, en litla vegagerð þarf, ef skólinn verður í Skálholti. Og þótt nú sé á fjárl. upphæð, sem ráðgert er að veita til vegagerðar þarna, þá mun hún hrökkva skammt og þyrfti áfram. Og þrátt fyrir þetta fé verður Skálholt endurreist.

Hv. flm. og 2. þm. Árn. sögðu, að kirkjunnar menn vildu, að í Skálholti yrði reist andlegra manna setur, en ekki bændaskóli. En í fyrra, þegar ég benti á, að skólinn ætti að vera reistur á Sámsstöðum, en endurreisa ætti Skálholt með andlegrar stéttar setri, þá vildu þessir hv. þm. ekki hlusta á það, en nú eru þeir annarrar skoðunar. Það er ekki hægt fyrir hv. þm. að komast hjá því að sjá þær krókaleiðir, sem hér eru farnar. Ég hygg, að ekki verði komizt hjá lagabreyt. og hætta við að byggja skólann í Skálholti, og hljóta þeir, sem í fyrra vildu endurreisa Skálholt, að vilja lagabreyt. og flytja skólann til Sámsstaða.

Að þessu athuguðu, þá hygg ég, að meiri hl. þm. verði ásáttur um það, að annaðhvort verður að reisa skólann heima í Skálholti eða á Sámsstöðum.

Hv. þm. sagði þá, að ekki væri rétt að gera þá n., sem ráðh. skipaði, ómerka að þessu. En ég tel, að n. hafi ekki verið ljóst, hvernig hér var að farið, og að hv. þm. samþ. þetta mál með þeim forsendum að endurreisa Skálholt.

Ég ætla svo ekki að fjölyrða meir um þetta, en ég geri ekki ráð fyrir, að meiri hl. hv. þm. fari nú að snúast í þessu máli.