08.11.1945
Sameinað þing: 6. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í D-deild Alþingistíðinda. (4603)
47. mál, bændaskóli Suðurlands
Fjmrh. (Pétur Magnússon) :
Herra. forseti. Ég vildi aðeins með fáum orðum gera grein fyrir þeim ástæðum, sem 3 manna n., sem skipuð var til að gera till. um tilhögun á væntanlegum bændaskóla í Skálholti, færir fyrir því, að skólinn skuli reistur, ekki heima á bænum í Skálholti, heldur á hæðunum fyrir vestan túnið, sem lagt er til. Þessar ástæður, sem n. hefur lagt fram, eru þrenns konar. Í fyrsta lagi telur n., að bæjarstæði sé betra á þessum stað en heima í Skálholti. Ég verð að segja það eins og er, að ég get ekki af eigin reynd dæmt um þetta. Ég hef ekki komið að Skálholti í mörg ár og þekki ekki svo vel staðhætti, að ég geti skapað mér sjálfstæða skoðun um það, hvort þetta er á rökum reist. Hitt er víst, að nm. allir eru sammála um þetta og ungur búfræðingur, Hjalti Gestsson frá Hæli, sem skipaður hefur verið til að standa fyrir og hafa eftirlit með framkvæmdum, sem ætlað er að gera í Skálholti, er n. sammála í þessu efni. Það er talið, að skólastæði sé á allan hátt heppilegra þarna og einnig að því er tekur til væntanlegra ræktunarframkvæmda.
Í öðru lagi hefur n. talið, að þetta sé fegursti staðurinn, sem um sé að ræða. Það er smekksatriði, og ætla ég ekki að halda því fram, að nm. séu dómbærari um þetta heldur en hv. þm. S.-Þ. (JJ), en þetta hefur samt sem áður ráðið hjá n., — að minnsta kosti ekki dregið úr, að leggja til, að skólinn yrði reistur á þessum hæðum.
Í þriðja lagi telur n. mæla með, að skólinn verði reistur á þessum stað, að töluvert styttra er til heita vatnsins en heiman frá bænum. Mér skilst, að þessi fyrirhugaði skólastaður sé mitt á milli gamla bæjarstaðarins og Þorlákshvers, eða kringum 1 km frá Skálholti. Og þaðan, sem nú er ákveðinn staður af n. fyrir skólann, er fullur 1 km. suður að heita vatninu. Þetta eru nú máske ekki veigamiklar ástæður, því að rétt er það, sem hv. þm. S.-Þ. segir um það, að ef leiða þarf vatnið á annað borð þetta langa leið, þá væri það sjálfsagt tæknilega fært að leiða það alla leið heim á gamla bæjarstaðinn, en nokkur aukakostnaður mundi þó verða við það.
Þetta eru ástæðurnar, sem þriggja manna n. hefur fært fyrir till. sínum. Það er náttúrlega skylt að meta þann áhuga, sem fram kemur hjá hv. þm. S-Þ. til að varðveita sögulegar minjar og sýna sóma þeim merka stað, sem hér er um að ræða, en mér finnst hins vegar það vera misskilningur hjá honum, að ekki sé unnt að sýna Skálholti alveg sama sóma, þó að skóli sé reistur á þessum hæðum. Og ég verð að segja það, að ef á annað borð á að hefjast handa um að koma upp merkilegu mannvirki, sem ætti að standa um langan tíma, jafnvel margar aldir, þá hygg ég, að ástæða sé til þess að ætla, að gamla bæjarstæðinu verði einhver sómi sýndur, því að þess er að gæta, að þótt skóli yrði reistur vestur á hæðunum, þá eru fleiri byggingar, sem þarf að reisa, svo sem hús handa skólastjóra, hús handa kennurum skólans, hús fyrir þá, sem á búinu ættu að starfa, sem ekki að öllu leyti kæmi skólastjórninni við, og ýmsar fleiri byggingar, sem gjarnan kæmu til greina að verða reistar heima á gamla bæjarstæðinu.
Þess ber að gæta, eins og bent hefur verið á af hv. 2. þm. Árn. (EE), að það er ekki eins og hið fyrirhugaða hússtæði sé í órafjarlægð frá gamla bæjarstæðinu, því að eins og ég veit, er líklega 10 mínútna gangur á milli staðanna og sýnist mér, að ekkert geti verið því til fyrirstöðu, að þeir menn, sem vinna við skólann, gætu búið þar heima, og gæti það e. t. v. að ýmsu leyti verið heppilegt, að einhver þeirra yrði til að búa þar, sem bærinn er nú.
Ég játa fúslega, að það liggja ekki fyrir neinar till. um það og ég get ekki endanlega bent á, hvað gera ætti til þess að sýna Skálholtsstað og gömlum sögulegum minjum, sem þar eru, tilhlýðilega virðingu. En það mun vafalaust gert á sínum tíma, og eins og ég sagði fyrst, sýnast mér miklar líkur til, að gamla bæjarstæðið verði prýtt og sýndur sá sómi, eftir að búið er að koma þessu mannvirki upp, sem ætlað er, að verði reist, og hygg ég því, að hv. þm. þurfi ekki að hafa áhyggjur út af því, að gamla Skálholt verði eins og hjáleiga, eins og hann talar um í grg. þáltill. sinnar, heldur getur það risið upp í þeirri mynd, sem flestir mundu óska, og það verður gert með því að sýna þeim gömlu sögulegu minjum þann sóma, sem skylt er að gera.