08.11.1945
Sameinað þing: 6. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 438 í D-deild Alþingistíðinda. (4604)

47. mál, bændaskóli Suðurlands

Flm. (Jónas Jónsson) :

Ég hef heyrt sagt, að hæstv. fjmrh. væri með betri málafærslumönnum hér á landi og sigursæll í málflutningi, og hygg ég það rétt vera. En þó hygg ég, að hann hafi slæman málstað hér, þegar maður, sem svo er fær, getur ekki fært sterkari rök fyrir þessu máli. Hygg ég það stafa af því, að málið sé óverjandi. Og ástæðan til þess, að ég hreyfi þessu hér, er sú, að ég vildi ekki segja það, eftir að það slys, sem hér á eftir að verða, þessi niðurníðsla á Skálholti, það sé ekki aðeins af völdum n., sem valdi þennan stað, eða á ábyrgð stj., heldur er það á ábyrgð þingsins, og það verður vel að athugast, ef Alþ. hefur ráð á að veita, þótt ekki sé nema 1 millj. og 200 þús. kr. sem fyrsta fjárframlag til byggingar á þessum stað með þeim hætti, að sýnilegt er, að það verður til móðgunar og leiðinda við þær minningar, sem áður voru tengdar við Skálholt.

Enda þótt hæstv. ráðh., sem er húsbóndi þeirrar n. (og sjálfsagt er góður húsbóndi við hjú sín), sem valdi staðinn, telji þetta betra bæjarstæði, þá skal ég ekki deila um það nema með einni röksemd. Það er ekki að efa, að reynslan hefur sannað, að landnámsmennirnir völdu þau beztu bæjarstæði, sem til voru, og virðast líka hafa haft næman smekk fyrir fögru útsýni, enda munu það hafa verið þroskaðir menn, sem völdu sér stað í Skálholti. Andleg menning landnámsmannanna átti þar heima í margar aldir, og er staðurinn þannig samofinn okkar sögu. Það er því áreiðanlega ekki vansalaust að níða nú staðinn meira niður en orðið er. Ég leyfi mér því að mótmæla rökum hæstv. ráðh. Ég treysti heldur á forfeður okkar, sem hafa upprunalega valið Skálholt og búið þar, því að mér þykir ólíklegt, að þessir 3 menn eða aðrir menn taki þeim fram.

Hæstv. ráðh. viðurkennir, að röksemdin um heita vatnið sé veik, því að þegar búið væri að dæla heita vatninu á annan km og í sömu hæð og Skálholtsbærinn er nú, þá mundi auðvelt að leggja leiðslu, sem ekki væri 1 km. heim að Skálholti. Aftur á móti má telja gamla bæjarstæðinu það til gildis, að í túninu sjálfu verður vart við jarðhita og eru líkur til, að fá megi þar nægjanlegt heitt vatn heima við bæinn. Mun kostnaður við þá virkjun ekki reynast eins mikill og hv. 2. þm. Rang. (IngJ) hefur minnzt á. Hitt hélt ég, að væri ekki hægt, að lokka heita vatnið úr Þorlákshver á þennan stað, nema þangað komi rafmagnsleiðsla, og hún mun reynast nokkuð dýr, því að næsti staður, sem hugsanlegt væri að fá rafmagn frá, er Sogið.

Hæstv. ráðh. vildi gefa í skyn, að hægt væri að sýna staðnum sóma með öðru móti. Ég man ekki betur, úr því að farið er að tala um þetta, en að það sé hálf öld frá því að staðnum hefur verið sómi sýndur. Og á síðustu öld hefur prestastéttin staðið á bak við þann óhróður að hafa látið það viðgangast, að sett skuli hafa verið í kirkjugarðinn í Skálholti minnismerki, sem er til minnkunar og ég veit, að er eitt af mörgum ljótum. Það er til skammar, að þetta minnismerki skuli vera í Skálholti, og er það eins konar tákn um þá vanrækslu, sem kirkjustjórnin hefur haft af þessum málum, því að virkilega átti kirkjustéttin í Árnessýslu að hafa eftirlit með og sjá svo um, að þetta væri ekki gert.

Ég er ekki að þreyta mig lengi á að svara ræðu hv. 2. þm. Árn. (EE), því að málið liggur opið fyrir, þegar einn af færustu málafærslumönnum þjóðarinnar hefur ekki önnur rök í málinu en þau, sem fram hafa komið. En þá eru það einhver önnur rök, sem hafa komið því til leiðar, að n. setti þetta fram. Síðan reynir hæstv. ráðh. að standa með n. Það sýnir góðan húsbónda að vilja standa með hjúunum, en þó getur það orðið til óþæginda, ef of langt er gengið. Ef það hefði svo ekki bætzt ofan á, að hv. 2. þm. Árn. hefur túlkað málið hér, til nokkurrar ábyrgðar fyrir þá sýslu, með þeim rökum, sem hann nú rífur niður aftur með því, sem nú er gert. Ef um það hefði verið talað að byggja hinn nýja skóla í útjaðri Skálholts, þá hefði það ekki þótt mikill glans í fyrra til að hressa upp á biskupssetrið.

Ég skal vera fáorður um það, hvaða líkur verða til þess að gera myndarlegar byggingar á staðnum að öðru leyti, og mun ég þá sérstaklega leita til sögunnar. Við höfum alls ekki verið svo fátæk þjóð undanfarin ár, að ekkert hefði verið hægt að gera. Það er ekki aðeins, að það sé eitt minnismerki uppistandandi í Skálholti, heldur er það líka eina endurminningin, sem eftir er þar frá fyrri öldum. Það er lítið minnismerki. Þar er beisklegt að sjá minnismerki í kirkjugarðinum. Það er ekkert gert til að hlynna að kirkjunni, hún er gamalt og fornfálegt timburhús. Nú er ekkert annað hægt að gera fyrir staðinn en það að reisa þar myndarlega kirkju. Það væri hægt að endurreisa þar kirkju Brynjólfs biskups eins og hún var. Fáir menn hafa stungið upp á því enn, og veit ég ekki betur en Árnesingar hafi ekki lagt því liðsinni á nokkurn hátt. Hvaða líkur eru til þess, hv. þm., að farið verði að sýna gamla staðnum sóma, þegar búið er að leggja hann niður og skólinn er búinn að rækta sitt tún vestur í öræfunum, eins og hv. 2. þm. Árn. hefur sýnt fram á? Þá er það eins og menn sjá, að gamli staðurinn er þá orðinn útkjálki frá nýja staðnum. Hverjum dettur í hug, að reist yrði kirkja í Skálholti, þó að ekki sé nema í 1 km fjarlægð frá nýja staðnum? Það mundi hvergi vera gert. En það, sem mælti með því, væri þörfin á að sýna forfeðrunum heiður. Að þessu leyti erum við skuldug, því að þeir höfðu Skálholt fyrir höfuðsetur um margar aldir, og þessa skuld stendur á okkur að borga nú þegar, af því að ekkert hefur verið gert af núverandi kynslóð til að borga þessa skuld, og get ég ekki treyst henni til þess, því að nóg annað mun hún hafa að gera, að reisa nýbýli á eyðistaðnum heldur en að reisa við kirkju á hinum staðnum. Ég vil skjóta því til hæstv. ráðh., að íslenzka þjóðfélagið hefur á 50 árum ekki haft kraft í sér eða efni til þess að koma upp verkstæði á Hólum og Hvanneyri. Búnaðarskólar landsins hafa staðið verkstæðislausir í 50 ár af fátækt eða hirðuleysi. Getur nokkur búizt við því, að svo vel verði brugðið við nú þegar, að ekki verði aðeins nógir peningar til byrjunarframkvæmda í Skálholti, heldur líka til að prýða eyðistaðinn, úr því að ekkert hefur verið gert að því áður?

Ég held, að þetta mál hafi verið heldur óheppilega undirbúið af þessari n. Síðasta þing lagði inn á að breyta vel undirbúinni ráðherraákvörðun um að byggja skólann í Rangárvallasýslu. Ég fullyrði, að þingið geti gert það réttara nú — með því að skera úr því að flytja hinn nýja skóla aftur heim á gamla staðinn í Skálholti heldur en það gerði í fyrra.