06.11.1945
Neðri deild: 22. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í B-deild Alþingistíðinda. (466)
5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)
Frsm. 1. minni hl. (Jón Pálmason) :
Herra forseti. Þessar umr. hafa farið nokkuð á dreif og hafa ekki eingöngu verið miðaðar við það, sem felst í þessu frv.
Nú skal ég ofurlítið fara í gegnum þau höfuðrök, sem fram komu til andmæla þessu frv. frá hv. frsm. 2. minni hl. landbn., þm. Mýr.
Í fyrsta lagi segir hann, að það hafi enga breyt. þurft og að dýrtíðarl. hafi verið og séu í gildi enn þá, vegna þess að ófriðarástandið sé óbreytt. Þeir segja hér í nál. sínu, þessir hv. þm. í 2. minni hl. landbn., að l. hafi verið miðuð við það, að þau væru í gildi meðan núverandi ófriðarástand héldist. Og það er rétt skýrt. En hverjir vilja svo staðhæfa, að þetta sé það „núverandi ófriðarástand“, sem var 1943, þegar l. voru sett? Það mun engum einasta þm. hafa dottið í hug, að þessi l. yrðu í gildi lengur en meðan styrjöldin stæði yfir. Og að því er það snertir, að þáverandi ófriðarástand sé nú til staðar, þá er næsta þýðingarlítið að svara svo mikilli fjarstæðu, sem hvert mannsbarn í heiminum veit, að er gagnstæð sannleikanum. Því að um leið og styrjöldinni var lokið, er það ófriðarástand ekki lengur til staðar, sem var árið 1943. — Hér þurfti því tvímælalaust breyt. Og það, sem þessir menn í hv. 2. minni hl. n. færa fram sem rök fyrir því, að ófriðarástandið sé óbreytt, er aðallega það, að dýrtíðin og framleiðslukostnaður innanlands sé hvort tveggja óbreytt, og það út af fyrir sig er rétt, að þetta tvennt er óbreytt. En það er algerð breyt. orðin umhverfis okkur í heiminum, og þess vegna er ekki hægt að gera ráð fyrir, að þessi l. verði áfram í gildi.
Það er rétt, að við bændur höfum ekki sérlega góða aðstöðu um að selja afurðir okkar á erlendum markaði. En því miður er útlitið þannig, að við getum miklu fremur búizt við því, að breyt., þegar hún verður meiri, verði í þá átt að gera aðstöðu okkar og verðlag verra en er, heldur en að það batni frá því, sem nú er. Það eru þess vegna ekki neinar ástæður fyrir hendi, sem geri það sennilegt, að þessi löggjöf eigi að framkvæmast áfram á sama grundvelli og var. — Hitt er svo vitanlega eðlileg skilgreining, að það sé út af fyrir sig rétt og sjálfsagt frá sjónarmiði okkar bænda, að við þurfum eðlilega að halda því sama hlutfalli milli framleiðslukostnaðar og afurðaverðs, sem ákveðið var með sex manna nefndar sáttmálanum, enda þótt lögin um það væru fallin úr gildi. En, eins og ég hef sagt á öðrum stað, er það sitt hvað, hvort við eigum kröfurétt á þessu eða hvort við þurfum að fá það, og það er nauðsynlegt fyrir okkar hag, að þetta samræmi haldist. Í því efni verðum við eðlilega að sæta því, eins og hverjir aðrir menn, að taka þann kostinn, sem beztur er. Og ég er ekki í neinum vafa um það, að sá kostur, sem okkur mun hagstæðastur, eins og sakir standa, er sá, sem felst í þessu frv., sem hér er um að ræða. Nú er það líka alveg tvennt ólíkt, en hefur of mikið verið blandað saman hér í umr., annars vegar hvert verðlagið er, hvernig útkoman verður á því, og hins vegar hver aðferð er höfð við verðlagninguna á afurðum bænda. Það, sem hér liggur fyrir í frv., sem fyrir liggur, er auðvitað ekki annað en aðferðin um það, með hverjum hætti eigi að ákveða verðlag á afurðum okkar bænda. Og ég hika ekki við að endurtaka það, sem ég sagði áður, að í því efni felur frv. þetta í sér mikla réttarbót fyrir bændastéttina frá því fyrirkomulagi, sem hefur verið á undanförnum árum í þessum efnum. Því að það hafa verið fjórar nefndir a. m. k., sem hafa haft með höndum þau verkefni, sem búnaðarráði og verðlagsnefnd nú er ætlað, og þessar fjórar n. voru að nokkru leyti stjórnskipaðar og að nokkru leyti skipaðar mönnum, sem tilnefndir voru annars vegar af félögum framleiðenda og hins vegar félögum neytenda hér í höfuðstaðnum. Það eru þess vegna engin tvímæli á því, að frá sjónarmiði okkar bænda er hér um stórkostlega réttarbót að ræða frá því, sem verið hefur, vegna þess að það eru bændur einir, sem nú eiga að fjalla um þessi mál. Það er út af fyrir sig alveg orðaleikur að tala um það, hvort það sé bændastéttin eða einstakir bændur. Það er út af fyrir sig rétt, sem hv. þm. Mýr. og hv. 2. þm. Skagf. (2. minni hl. n.) segja, að það eru ekki félagssamtök bænda, sem hér er um að ræða, heldur einstakir menn úr bændastéttinni. Breyt. er sem sagt sú frá því, sem áður var, að ráðh. er skuldbundinn til þess að tilnefna eingöngu menn úr bændastétt til þess að fara með þessi mál, í stað þess, að áður voru engin fyrirmæli um það, enda var það yfirleitt ekki gert. Hitt er svo bara aðferðaratriði, að samkv. frv. er ráðh. gefin heimild til eða hann fær vald til að velja 25 menn úr bændastétt í nefnd, sem m. a. hefur það verkefni með höndum að kjósa menn í verðlagsráðið, sem skal hafa aðalstarfið með höndum. Og þegar það hefur skeð á undanförnum árum og einnig á síðasta ári, að það hafa verið valdar fjöldamargar n. til hinna og þessara starfa, og mikill meiri hl. þeirra n. hefur verið skipaður af ríkisstj., að ekkert hefur verið út á það sett af hálfu stjórnarandstæðinga, þá þykir mér ákaflega einkennilegt, að þegar lagafyrirmæli kemur um það, að ríkisstj. sé skuldbundin til að velja í eina n. eingöngu bændur, þá skuli þessir menn úr bændastétt rísa upp með offorsi og illum látum og segja, að nú sé verið að taka valdið af bændastéttinni í landinu. Hér er ekki nein önnur breyt. á gerð en sú frá venjulegri nefndaskipun, að hér er fjölmennari n. en tíðkazt hefur að hafa nefndir áður, og einnig hitt, að ráðh. er skuldbundinn til að taka alla nefndarmenn eingöngu úr hópi bænda og þeirra manna, sem vinna fyrir bændastéttina. — Ég er þess vegna undrandi yfir því, að þessir menn úr bændastétt, sem hafa látið sér hægt, þótt í þeirra stjórnartíð og í stjórnartíð núv. hæstv. ríkisstj. hafi verið skipaður mikill urmull nefnda til hinna og þessara starfa, og hafa þá þagað, skuli nú rísa upp til andmæla, þegar eina skilyrðið fyrir skipun vissrar n. er nú, að þessi n. skuli skipuð eingöngu bændum og þeirra fulltrúum.
Nú er í öðru lagi á það að líta, að um 11 ára skeið er búið að vera það fyrirkomulag á þessum málum, sem ég áðan lýsti, að það hafa margar n. annazt það starf, sem búnaðarráð á að sjá um eftir þessu frv., og aðeins einn bóndi hefur verið í þessum nefndum til þessa, og þá hafa þessir menn, andmælendur þessa frv., þagað og ekki beitt sér fyrir samtökum til þess að hrinda því fyrirkomulagi bara blátt áfram vegna þess, að Framsfl. — þeirra flokkur — var þá sá flokkur, sem hafði völdin. En þegar það er Sjálfstfl. og samstarfsmenn hans í ríkisstj., sem hafa völdin og taka aðferð upp og form, sem er miklu heppilegra en það, sem verið hefur, þá rísa þessir menn upp og reyna að telja bændum almennt trú um, að nú sé verið að skerða þeirra rétt, taka valdið af þeim. Hér er um svo mikil öfugmæli að ræða, að það sætir undrun, að sæmilega greindir menn skuli halda fram slíkum fullyrðingum, sem eru algerlega út í loftið.
Þá er því haldið fram í nál. hv. 2. minni hl. landbn., sem kom einnig fram í ræðu hv. þm. Mýr., að aðrar stéttir í þessu landi hefðu einveldi, hver fyrir sig, til þess að skapa sér kaup og kjör. Þetta vita reyndar allir hv. þm., að er líka alveg rangt. Og við þurfum ekki lengra að fara en að líta á þá kaupdeilu stéttarfélags, sem nú stendur yfir. Hverjir mundu trúa því, að hér væri nokkur kaupdeila á siglingaflotanum, ef sú regla gilti hér á landi, sem þessir menn leyfa sér að setja í nál., að sé gildandi, að það sé almennt viðurkennt, að aðrar stéttir en bændur hafi einar óskorað vald til þess að ákveða sitt kaup og kjör? Hvað mundi verða um það sagt, ef Alþýðusambandi Íslands, sem er fjölmennasti félagsskapur launastétta í þessu landi, væri falið að ákveða það, án íhlutunar ríkisvaldsins eða annarra aðila, stétta eða manna, hvaða verkalaun skyldu vera greidd í þessu landi? Slíkt væri vitanlega mikið ranglæti. Og það er vitanlega svo mikið rangmæli, sem hv. 2. minni hl. n. leyfir sér að fara með í nál. og kom fram í ræðu hv. þm. Mýr., að aðrar stéttir í landinu en bændur hefðu einveldi í kaupgjaldsmálum hver fyrir sig, að það sætir furðu, að maður eins og hv. þm. Mýr. skuli leyfa sér að bera slíkt á borð fyrir hv. þm.
Nú er það vitað, að aðstaða okkar bænda hefur alltaf verið og mun verða gerólík því, sem er hjá þeim, sem taka laun hjá öðrum, hvort sem er hjá ríki eða stofnunum þess eða öðrum. Það er ekki svo sem við höfum nokkurn kröfurétt á því að heimta það, bændurnir, — og ekki heldur útgerðarmenn, iðnaðarmenn eða aðrir, sem framleiðslu stunda, — að okkur sé tryggð einhver ákveðin launafúlga af hálfu ríkisins, eins og gert er gagnvart fastlaunuðum mönnum samkv. launalögum. Slíkt gæti ekki orðið framkvæmt á annan hátt en þann, að stofnað væri til allsherjar ríkisrekstrar, eins og talið er, að sumir menn hér á hæstv. Alþ. og aðrir utan þings vilji gjarnan stofna til. Þess vegna geta menn engan veginn vænzt þess, að núv. ríkisstjórn, frekar en aðrar ríkisstjórnir, sem hér hafa verið á þessu landi áður, vilji kasta því í hendur einhverra ákveðinna manna, jafnvel þótt þeir væru kosnir af einhverjum fulltrúafundi, að ákveða verðlag á þessari eða hinni vörunni. Hins vegar álít ég, að vel færi á því í framtíðinni, ef á annað borð á að stofna stéttarfélag bænda, sem almennt er viðurkennt að vera slíkt, þá væri því falið að ákveða verðlag á framleiðsluvörum bændastéttarinnar. En þá hlýtur að fylgja því sá kvóti, að af því verði ekki greitt neitt úr ríkissjóði.
Þá skal ég víkja að því, sem hv. þm. Mýr. lagði áherzlu á, að stéttarsamband bænda væri til og hefði verið stofnað eftir lýðræðislegum reglum og væri almennt viðurkennt af bændum landsins. Þessu vil ég harðlega mótmæla. Ég mótmæli því, að hér á landi sé nokkurt stéttarsamband bænda til, sem almennt sé viðurkennt af bændunum sjálfum. Og það samband meðal bænda, sem stofnað hefur verið, hefur verið stofnað með þeim hætti, að það getur ekki orðið með það almenn ánægja. Ég lýsti því við 1. umr. þessa máls. Og hver er því kunnugastur, sem næst honum gerist. Í minni sveit, t. d., var aldrei boðaður neinn fundur til þess að undirbúa stofnun þessa stéttarsambands og eðlilega því síður haldinn. En það var tekinn þaðan maður á þessum svo kallaða fulltrúafundi og kallaður fulltrúi fyrir mína sveit, án þess hann væri nokkurn tíma kosinn. Og svo mun þetta hafa víðar verið. Svo kemur hv. þm, Mýr., sem tók að sér að ræna fundi, sem aðrir höfðu boðað til á eðlilegan hátt, og síðan segir hann, að þetta stéttarfélag hafi verið stofnað á lýðræðislegan hátt. Hið sanna er, að til þess hefur verið stofnað á flokksklíkulegan hátt, en ekki lýðræðislegan hátt. Og meðan svo er, mun ég ekki vinna að því að fela slíku sambandi þau störf, sem hér er farið fram á í frv. hv. þm. Mýr. og hv. 2. þm. Skagf. og fleiri hv. þm., að gert verði. (Forseti: Gerir hv. þm. ráð fyrir að flytja langa ræðu?). Ég geri ráð fyrir hálftíma enn. (Forseti: Þá vil ég biðja hv. þm, að geyma afganginn af ræðu sinni þar til síðar.) Það er velkomið. [Frh.]