26.11.1945
Neðri deild: 39. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í C-deild Alþingistíðinda. (4671)

101. mál, lax- og silungsveiði

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Það er fjarri því, að ég hafi nokkra hvöt til þess að vera þeim mönnum meinsemdarmaður, sem gætu haft hag af því að veiða lax í sjó. Og ef aðeins væri á það að líta, þeirra hlunnindi og ekkert frekara, þá mætti telja meinfangalaust að veita slíka heimild, sem felst í þeirri breyt., sem hv. þm. Mýr. ber fram við laxveiðilögin. Eða ef það gæti komið til greina aðeins eitthvert lítilræði, sem enga verulega verkun hefði upp á þessi hlunnindi bænda landsins, þá mætti segja, að ekki væri mikill skaði skeður, þótt heimildin væri veitt. En slíku er ekki til að dreifa.

Við vorum það lánsamir, þegar laxveiðilögin voru sett árið 1932, að nær hvergi hafði verið stunduð sjávarveiði. Að vísu hafði það verið borið dálítið við, en ég ætla, að það hafi ekki verið nema á 3 stöðum, sem þau hlunnindi voru talin og metin til verðs með jörðinni og komið inn í fasteignamat. Það mun hafa verið eitthvað víðar borið við að veiða lax með ströndum landsins, en á mjög fáum stöðum þó, og ætla ég, að það hafi ekki verið fært til fasteignamats nema á 2 eða 3 stöðum. Ég þori að vísu ekki að fullyrða þetta, en það skiptir ekki heldur miklu máli. Fyrir þær sakir er þessi heimild í laxveiðil., að það er heimilt á þessum jörðum, þar sem laxveiðin hefur verið metin til dýrleika og komið inn í verð jarðanna. Aðeins á þeim stöðum, en hvergi annars staðar, er heimilt að veiða úr sjó. Langsamlega hefði það verið æskilegast, og jafnvel þótt hið opinbera hefði þurft að leggja á sig að innleysa þessa veiði og banna alls staðar veiði í sjó. Sjávarveiðin, ef farið er að stunda hana að ráði, er eitt hið mesta skaðræði fyrir göngu laxins upp í árnar. Þetta þekkja allir, sem þekkja nokkuð til laxveiða. Og í þessu efni mætti það verða til varnaðar, hvaða reynslu aðrar þjóðir hafa fengið af þessu. Danir hafa stundað veiði í sjó, og fyrir þær sakir hafa þeir gefizt upp við að bjarga laxveiðunum hjá sér. Í Svíþjóð hefur einnig verið stunduð laxveiði í sjó, og sjá þeir mjög mikið eftir því, hve seinir þeir voru að breyta l. til þess að leggja hindranir á þessa veiði. Veiðin þar hafði gengið til þurrðar, en reynt var að bjarga henni með því að koma á félagsveiði. Nokkru hefur verið bjargað, en hvergi þó eins og gert hefði verið, ef sjávarveiði hefði ekki verið leyfð. Ég tilnefni ekki fleiri dæmi um þetta.

Mér skilst, að þetta ætti að nægja hv. þm. til að gæta hér fyllstu varúðar og leyfa ekki laxveiði í sjó. Það nær ekki nokkurri átt, fyrir hagsmuni örfárra manna, að leggja veiðihlunnindin í hættu hjá mörgum hundruðum og jafnvel þúsundum manna í landinu. Eftir því, sem hv. þm. Mýr. rökstyður mál sitt, skilst mér, að hér sé ekki um mikið að ræða. En gerum nú ráð fyrir, að það kunni að slæðast ein og ein kind upp að ströndinni, og að þetta sé alveg saklaust, þó að leyft yrði, — að það sé enginn skaði skeður, — og mér skilst, að þetta eigi að vera nokkurs virði fyrir þá, sem réttinn eiga að öðlast, en engum öðrum að gera skaða. Eftir hverju er þá verið að sækjast? Þetta er náttúrlega sett fram í þessum búningi til þess að fá menn frekar til fylgis við málið en ef flm. lýsti því eins og fyrir þeim vakir, sem vilja fá þessi hlunnindi, því að það er ekki gert til þess að fá eina og eina laxkind. Þeir vilja fá mikið, og sumir þeirra hafa von um að geta fengið mikla veiði og haft af því mikil hlunnindi, og þess vegna er þetta mál borið fram. Og það er í því, sem skaðræðið er fólgið, að þetta getur orðið til þess að torvelda göngur laxins upp í árnar, með því að taka hann í sjó. Og sjá allir, ef það er gert víðsvegar meðfram ströndum landsins, hverjar afleiðingar af því verða fyrir laxgöngur upp í árnar. Ég held, að við ættum fremur hér á Alþ. að geta gert eitthvað til að auka þessi hlunnindi, gera frekar ráðstafanir til þess, að menn gætu átt von á því á hverju sumri að fá nokkur hlunnindi og þá sem mest, án þess þó, að veiðin gangi til þurrðar, og að sem flestir gætu haft hagræði og hagsmuni af því að fá veiði, fá nýmeti, einmitt á þeim slóðum, þar sem erfiðast er að ná til þess, eins og enn háttar til hjá okkur. Mér fyndist mjög ánægjulegt til þess að vita, ef menn mættu eiga von á því, að sem flestir búendur landsins, sem eiga land að ám og veiðivötnum, gætu átt von á að fá nýmeti fyrir sig og heimilisfólkið. Og vissulega ber fremur að gera eitthvað til að auka þessi not og hlunnindi heldur en að gera ráðstafanir, sem hindra og torvelda í stórum stíl, að laxinn geti gengið upp í árnar, og gæti leitt til þess að eyða veiðinni í ám og vötnum landsins. Vitaskuld hagar misjafnlega til við sjóinn hvað áhrærir þetta, og mætti næstum búast við, að þetta hefði mismunandi miklar verkanir. En í námunda við árnar og veiðivötnin, sem laxinn hefur göngur sínar í, þar mundi veiðin verða stunduð og valda mestum skaða, og þar er það líka, sem mest ber að óttast. Nú er það svo, að þegar laxinn hefur göngu sína upp í árnar, þá fer hann ekki strax upp í þær, þegar hann kemur upp að ströndinni, heldur syndir hann aftur og aftur út frá ósunum og syndir aðeins upp í árósana. Þess vegna eru ótal skilyrði á slíkum stöðum að taka laxinn, þegar hann er kominn upp að ströndinni og hefur göngu sína upp í árnar. Og það er þetta, sem áreiðanlega er vert að fyrirbyggja, að eigi sér stað. Mér finnst hv. þm. líka vera seinheppinn í því, hvers konar veiðitæki sé leyft að nota við laxveiðina. Honum nægja ekki venjuleg net, heldur vili hann, að það megi hafa króknet líka. Þetta gefur til kynna, hver hugsunin er og á hvern hátt á að stunda veiðina. Það er gengið frá þeim netum á þann hátt, að það er engin leið, að þeir laxar, sem ekki ánetjast, sleppi aftur. Það er svo fullvíst, að lax sleppur ekki lifandi úr þeim veiðiklóm aftur, sem áttu að hremma hann.

Í laxveiðil., sem nú gilda, eru slíkar veiðiaðferðir ekki aðeins bannaðar í ám og vötnum, heldur er líka bannað að veiða í sjó í slíkt veiðitæki. Og þar sem það hefur viljað til, að lax hefur ánetjazt í sjó, þá er skylt, svo framarlega sem hann er með líftóru, að sleppa honum aftur. Þetta gefur til kynna, hvað löggjafinn á þeirri tíð lagði upp úr því að vernda laxinn fyrir því að vera veiddur í sjó. Ástæðurnar fyrir því hafa ekki breytzt, þær eru sígildar, og þess vegna nær, það vitaskuld ekki nokkurri átt að rýmka aðstæður, svo að farið yrði að veiða lax í sjó, því að einmitt langt úti frá árósunum gengur laxinn með ströndinni. Það er því öðru nær en það sé rétt, sem hv. þm. Mýr. var að halda fram, að þangað slæddist ein og ein kind, enda þarf ekki frekar vitnanna við um þetta mál, þar sem farið er fram á að opna sjávarveiðina.

Það segir hér í 1. gr. frv., að heimildin eigi bæði að ná til þess að leggja lagnet og króknet frá meginlandinu, ofan netlaga.

Um orðalag frv. skal ég ekki fjölyrða, en mér þykir betra orðalag „ofan netlaga“ en „innan netlaga“. Annars virðist mér það ekki skipta miklu máli.

Ég vil vænta þess, að hv. landbn. athugi þetta mál vel, áður en hún fellst á nokkrar breyt. eða rýmkun hér að lútandi.